Eimskip birtir uppgjör annars ársfjórðungs 2026
Eimskipafélag Íslands hf. birtir uppgjör annars ársfjórðungs eftir lokun markaða þriðjudaginn 25. ágúst 2026.
Kynningarfundur 26. ágúst 2026
Eimskip býður fjárfestum og markaðsaðilum til fundar þar sem Vilhelm Már Þorsteinsson, forstjóri og Rósa Guðmundsdóttir, fjármálastjóri munu kynna uppgjörið. Fundurinn verður haldinn miðvikudaginn 26. ágúst nk. kl. 8:30 í höfuðstöðvum félagsins Sundabakka 2, 2. hæð.
Fundurinn verður einnig sendur út í gegnum fjárfestasíðu félagsins www.eimskip.com/investors. Þar verður útbúinn sérstakur hlekkur áður en fundur hefst.
Fjárfestum er velkomið að senda spurningar fyrir fundinn á netfangið investors@eimskip.com.
Uppgjörsgögn og upptöku verður hægt að nálgast á fjárfestasíðu Eimskips, www.eimskip.is/investors.