Lördag 23 Maj | 10:24:51 Europe / Stockholm

Prenumeration

Vem äger bolaget?

All ägardata du vill ha finns i Holdings!

2026-03-26 17:55:00

Tilkynning um afkomu A/F HEIM slhf.

Sérhæfði sjóðurinn A/F HEIM slhf., sem er í rekstri Arctica sjóða hf., hefur í dag samþykkt ársreikning sjóðsins. Vaxtatekjur námu 963 milljónum króna (2024: 1.117 milljónir króna) og vaxtagjöld 962 milljónum króna (2024: 1.116 milljónir króna). Hreinar rekstrartekjur félagsins námu 19,3 milljónum króna á árinu 2025 (2024: 19,5 milljónir króna). Hagnaður félagsins á árinu 2025 var 299 þúsund krónur (2024: 518 þúsund krónur).

Eignir félagsins námu 15,6 ma. kr. í árslok 2025 og skuldir félagsins námu á sama tíma 15,6 ma. kr. Eigið fé félagsins í árslok 2025 var 5,4 millj. kr. samkvæmt efnahagsreikningi. Vísað er að öðru leyti til ársreiknings félagsins um breytingar á eigin fé félagsins og ráðstöfun hagnaðar.

Sjóðurinn A/F HEIM slhf. var stofnaður árið 2021 og starfar samkvæmt lögum um rekstraraðila sérhæfðra sjóða. Sjóðurinn fjárfesti í skráðum skuldabréfum sem voru útgefin af Heimavöllum hf. gegn greiðslu með skráðum skuldabréfum útgefnum af sjóðnum, sem eru með veði í fasteignatryggðum seljendalánum til Íveru ehf. Skráðir skuldabréfaflokkar A/F HEIM slhf. eru þrír talsins, HEIM070826, HEIM100646 og HEIM071248.

Meðfylgjandi er ársreikningur ársins 2025.