Bifogade filer
Prenumeration
Skýrsla staðfestingaraðila vegna skuldabréfaflokkanna HEIM070826, HEIM100646 og HEIM071248
PricewaterhouseCoopers (Pwc) hefur skilað staðfestingum á skýrslu Íveru ehf. vegna skuldabréfaflokkanna HEIM070826, HEIM100646 og HEIM071248 útgefnum af A/F HEIM slhf.
PwC hefur farið yfir skýrslu varðandi fjárhagslegar og sérstakar kvaðir, verðmat sem liggur til grundvallar og aðrar upplýsingar miðað við dagsetninguna 30.6.2025. Vísað er til skýrslu útgefanda um fjárhagslegar- og sérstakar kvaðir, dags. 23. september 2025.
- PwC staðfestir að skuldabréfaflokkurinn HEIM100646 stenst öll skilyrði.
- PwC staðfestir að skuldabréfaflokkurinn HEIM071248 stenst öll skilyrði, að undanskildu skilyrði um hámarks lánaþekju.1)
- PwC staðfestir að skuldabréfaflokkurinn HEIM070826 stenst öll skilyrði, að undanskildu skilyrði um hámarks lánaþekju.1)
1) Hlutfall uppgreiðsluverðmætis útistandandi verðtryggðra krafna gagnvart verðmæti hinna veðsettu eigna á samkvæmt viðauka dags 17. apríl 2024 við samning við staðfestingaraðila ekki vera umfram 60%. Við yfirferð okkar kom í ljós brot á þessu fjárhagslega skilyrði. Í dag hefur ein fasteign (21 fastanúmer) verið veðsett og tryggingabréf verið dagbókafærð. Eftir þessa breytingu verður lánaþekja 58,9%.
Yfirferð staðfestingaraðila á fjárhagslegum- og sérstökum kvöðum samræmist mati útgefanda og skýrsla um fjárhagslegar og sérstakar kvaðir er staðfest miðað við dagsetninguna 30. júní 2025.
Niðurstöður kannana má sjá í meðfylgjandi viðhengjum.