Torsdag 5 November | 17:55:41 Europe / Stockholm
Est. tid*
2027-03-11 N/A Årsstämma
2027-02-11 17:15 Bokslutskommuniké 2026
2026-11-05 17:30 Kvartalsrapport 2026-Q3
2026-08-27 - Kvartalsrapport 2026-Q2
2026-05-12 - Kvartalsrapport 2026-Q1
2026-03-26 - Årsstämma
2026-03-23 - X-dag ordinarie utdelning HEIMAR 0.40 ISK
2026-02-12 - Bokslutskommuniké 2025
2025-10-22 - Kvartalsrapport 2025-Q3
2025-08-20 - Kvartalsrapport 2025-Q2
2025-05-12 - Kvartalsrapport 2025-Q1
2025-03-12 - X-dag ordinarie utdelning HEIMAR 0.43 ISK
2025-03-12 - Årsstämma
2025-02-12 - Bokslutskommuniké 2024
2024-11-06 - Kvartalsrapport 2024-Q3
2024-08-21 - Kvartalsrapport 2024-Q2
2024-05-07 - Kvartalsrapport 2024-Q1
2024-03-12 - Årsstämma
2024-02-14 - Bokslutskommuniké 2023
2023-11-16 - Kvartalsrapport 2023-Q3
2023-08-30 - Kvartalsrapport 2023-Q2
2023-05-07 - Kvartalsrapport 2023-Q1
2023-03-07 - Årsstämma
2023-02-10 - Bokslutskommuniké 2022
2022-11-04 - Kvartalsrapport 2022-Q3
2022-08-23 - Kvartalsrapport 2022-Q2
2022-05-05 - Kvartalsrapport 2022-Q1
2022-03-10 - Årsstämma
2022-02-10 - Bokslutskommuniké 2021
2021-11-04 - Kvartalsrapport 2021-Q3
2021-08-12 - Kvartalsrapport 2021-Q2
2021-05-06 - Kvartalsrapport 2021-Q1
2021-03-11 - X-dag ordinarie utdelning HEIMAR 0.00 ISK
2021-03-10 - Årsstämma
2021-02-10 - Bokslutskommuniké 2020
2020-11-05 - Kvartalsrapport 2020-Q3
2020-08-13 - Kvartalsrapport 2020-Q2
2020-05-13 - Kvartalsrapport 2020-Q1
2020-03-11 - Årsstämma
2020-02-12 - Bokslutskommuniké 2019
2019-11-07 - Kvartalsrapport 2019-Q3
2019-08-15 - Kvartalsrapport 2019-Q2
2019-04-11 - Kvartalsrapport 2019-Q1
2019-03-14 - Årsstämma
2019-02-13 - Bokslutskommuniké 2018
2018-03-14 - Årsstämma
2018-02-13 - Bokslutskommuniké 2017
LandIsland
ListaMid Cap Iceland
SektorFastigheter
IndustriFörvaltning
Heimar är ett fastighetsbolag. Bolaget äger och förvaltar ett fastighetsbestånd som består av kommersiella fastigheter. Portföljen av fastigheter inkluderar exempelvis kontors- och lagerlokaler, samt fastigheter för hotell och köpcentrum. Utöver investerar och utvecklar bolaget i både befintliga och nya fastigheter runtom på den isländska marknaden. Verksamhet styrs via flertalet dotterbolag med vardera affärsinriktning.

All ägardata du vill ha finns i Holdings!

Heimar hf.: Árshlutareikningur Heima hf.

2026-11-05 17:00:00

Helstu atriði níu mánaða uppgjörs:

  • Rekstrartekjur voru 13,2 ma.kr. á fyrstu níu mánuðum ársins og leigutekjur hækka um 12,2% frá fyrra ári sem er 7,2% umfram hækkun verðlags á sama tíma. 
  • Raunvöxtur leigutekna á sambærilegu eignasafni milli ára er 3,1%.  
  • EBITDA nam um 8,9 ma.kr. og hækkar um 10,3% m.v. sama tímabil árið 2025. 
  • Hagnaður var um 4,2 ma.kr. samanborið við 2,9 ma.kr. á sama tímabili í fyrra.  
  • Arðsemi eiginfjár var 7,1%. 
  • Handbært fé frá rekstri síðustu tólf mánaða um 9,9% af markaðsvirði félagsins í lok fjórðungs. 
  • Fjárfestingaeignir voru bókfærðar á 244 ma.kr. í lok tímabils. 
  • Matsbreyting fjárfestingaeigna nam 7,5 ma.kr. á fyrstu níu mánuðum ársins. 
  • Handbært fé nam um 3,6 ma.kr. í lok tímabils. 
  • Vaxtaberandi skuldir voru 147 ma.kr. í lok tímabils. 
  • Skuldahlutfall var 61,5% og eiginfjárhlutfall 31,9% í lok tímabils. 

 

Halldór Benjamín Þorbergsson, forstjóri Heima 

„Rekstur Heima er stöðugur og tekjugrunnur félagsins traustur. Útleiguhlutfall er áfram hátt, eða 96% og 42% leigutekna koma frá opinberum aðilum og skráðum félögum. Áhersla á uppbyggingu og þróun kjarnasvæða heldur áfram að styrkja eignasafn félagsins til lengri tíma. 
 
Stjórn Heima hefur samþykkt nýja arðgreiðslustefna sem byggir á traustum undirliggjandi rekstri og skýrri fjárfestingastefnu. Á næstu misserum bætast stór tekjuberandi fjárfestingaverkefni við eignasafnið með traustum leigutökum. Með markvissri uppbyggingu hefur verið skapaður grunnur að auknum arðgreiðslum til hluthafa samhliða áframhaldandi fjárfestingum. 

Stefnt er að því að ráðstafa árlega fjárhæð sem nemur að lágmarki 60% af handbæru fé frá rekstri til hluthafa. Stjórn horfir í auknum mæli til arðgreiðslna umfram endurkaup. Áherslubreytingin endurspeglar stöðu félagsins í dag og aukið svigrúm til að láta hluthafa njóta ávinnings af traustum rekstri og uppbyggingu undanfarinna ára. Þetta markar nýjan áfanga í þroskaferli félagsins sem stendur á traustum grunni og er í kjörstöðu til að sækja fram.“ 

Rekstur og afkoma  
Rekstrartekjur námu 13.179 m.kr. fyrstu níu mánuði ársins og þar af námu leigutekjur 12.548 m.kr. Leigutekjur hafa hækkað um 12,2% samanborið við sama tímabil 2025, sem jafngildir tæplega 7,2% raunaukningu. Nokkrar breytingar hafa orðið á eignasafninu á milli ára sem hafa áhrif á leigutekjur. Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu og afskriftir (EBITDA) var 8.880 m.kr. sem samsvarar 10,3% hækkun samanborið við sama tímabil 2025. 

Eignasafn og efnahagur 
Virði fjárfestingaeigna félagsins að frádregnum leigueignum er metið á 238.523 m.kr. Safnið samanstendur nú af 98 fasteignum sem alls eru um 392 þúsund fermetrar. Útleiguhlutfall helst hátt og er um 96% miðað við þær tekjur sem 100% útleiga gæfi, og undirstrikar sterka eftirspurn eftir atvinnuhúsnæði. Heildarmatsbreyting fyrstu níu mánuði ársins nam 7.468 m.kr. 

Á dögunum var gengið frá samningum um sölu tveggja eigna fyrir samtals um 1.200 m.kr. Áætlað er að viðskiptin gangi í gegn á komandi misseri. 

Áfram er unnið að uppbyggingu eignasafnsins. FSRE hefur tilkynnt Heimum að tilboð félagsins um uppbyggingu og útleigu hjúkrunarheimilis að Eirhöfða 2 hafi verið valið í markaðskönnun um hjúkrunarheimili á höfuðborgarsvæðinu. Tilboðið felur í sér uppbyggingu á um 6.200 m² hjúkrunarheimili með um 95 hjúkrunarrýmum. Endanleg samningsgerð er háð því að samkomulag náist milli aðila um skilmála leigusamnings. Þá á félagið í viðræðum við FSRE um uppbyggingu og langtímaleigu húsnæðis undir heilsugæslustöð við Tjarnarvelli 9 í Hafnarfirði. 

Umsvif og horfur 
Alls voru gerðir 11 samningar fyrir um 9.770 m2 á þriðja ársfjórðungi. 
Meðal stærstu samninga á tímabilinu var meðal annars endurnýjun samninga við Kea hótelrekstur ehf. fyrir um 5.083 m2 í Hafnarstræti 83-89,  (Hótel KEA, Akureyri) og við BM Vallá fyrir um 1.903 m2 í Norðurhrauni 1.  
Gerðir voru nýir leigusamningar við Dineout í Silfursmára 12 fyrir 459 m2 og tveir nýir samningar í Katrínartúni 2, við Múlakaffi ehf. og Ripple ehf. 

Sjálfbærni og ábyrgur rekstur 
Áfram er unnið að umhverfisvottunum í eignasafninu með áherslu á vottun stærri eigna í eigin rekstri. Eignirnar Dvergshöfði 4, Katrínartún 2, Borgartún 8-16 og Gróska eru nú í vottunarferli. Þá hlaut Silfursmári 12 Grænu skófluna fyrir vandaða hönnun og umhverfisgæði en um er að ræða 2.400 m2  skrifstofu- og þjónustubyggingu við Smáralind sem hönnuð er samkvæmt viðmiðum Svansins. 

Heimar hlutu viðurkenningu Creditinfo sem Framúrskarandi fyrirtæki 2026, í 4. sæti af rúmlega 1.200 fyrirtækjum, og voru jafnframt í 7. sæti á lista Viðskiptablaðsins og Keldunnar yfir Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri.  

Fjármögnun
Fjárhagsstaða félagsins er sterk og eiginfjárhlutfall 31,9%. Í lok tímabilsins var handbært fé 3.568 m.kr. og auk þess hafði félagið aðgang að ónýttum lánalínum að fjárhæð 4.600 m.kr. í lok tímabilsins.  
 
Kynningarfundur á árshlutauppgjöri 
Samhliða birtingu uppgjörs bjóða Heimar til opins kynningarfundar samdægurs kl. 16:15. Fundurinn verður haldinn í höfuðstöðvum félagsins í Smáralind, Hagasmára 1, 201 Kópavogi. Boðið verður upp á léttar veitingar. 

Halldór Benjamín Þorbergsson forstjóri Heima mun kynna uppgjörið og svarar spurningum að kynningu lokinni. Skráning á kynningarfundinn fer fram í gegnum netfangið fjarfestatengsl@heimar.is.

Fundinum verður einnig varpað í gegnum netið á eftirfarandi slóð:  

https://www.heimar.is/kynningarfundir/afkoma-fyrstu-9-manada-2026/ 

 
Hægt er að nálgast árshlutareikning vegna fyrstu níu mánaða ársins og kynningargögn á https://www.heimar.is/fjarfestar/fjarhagsupplysingar/ 
 
Nánari upplýsingar veitir Halldór Benjamín Þorbergsson, forstjóri Heima hf., sími: 821 0001