Bifogade filer
Prenumeration
Beskrivning
| Land | Island |
|---|---|
| Lista | Mid Cap Iceland |
| Sektor | Fastigheter |
| Industri | Förvaltning |
Vem äger bolaget?
All ägardata du vill ha finns i Holdings!
Aðalfundur Heima hf. („Heimar“ eða „félagið“) verður haldinn mánudaginn 9. mars 2026 í Smárabíó, í salnum Flauel, Hagasmára 1, 201 Kópavogi, kl. 15:00.
Framboðsfrestur til stjórnar og tilnefningarnefndar Heima rann út 2. mars sl.
Eftirtaldir einstaklingar hafa gefið kost á sér til setu í stjórn, varastjórn og tilnefningarnefnd félagsins.
Í framboði til aðalstjórnar eru:
Birgir Már Ragnarsson
Guðrún Tinna Ólafsdóttir
Heiðrún Emilía Jónsdóttir
Steingrímur Halldór Pétursson
Tómas Kristjánsson
Í framboði til varastjórnar eru:
Andri Sveinsson
Bryndís Hrafnkelsdóttir
Samkvæmt samþykktum félagsins kýs aðalfundur fimm manna stjórn. Fyrir aðalfundinum liggur tillaga um breytingu á samþykktum félagsins þess efnis að heimilt verði að kjósa tvo varamenn í stjórn félagsins.
Önnur framboð til stjórnar hafa verið dregin til baka og verður stjórn félagsins því sjálfkjörin á aðalfundinum.
Í framboði til tilnefningarnefndar eru:
Árni Gunnarsson
Davíð Stefán Guðmundsson
Á dagskrá aðalfundar er kjör tveggja nefndarmanna í tilnefningarnefnd félagsins til tveggja ára. Þar sem engin önnur framboð til tilnefningarnefndar bárust innan framboðsfrests verða frambjóðendur til tilnefningarnefndar sjálfkjörnir á aðalfundinum.
Nánari upplýsingar um frambjóðendur til stjórnar og tilnefningarnefndar má finna í meðfylgjandi viðhengjum.
Önnur fundargögn tengd aðalfundinum, þar á meðal skýrsla tilnefningarnefndar, umboðsform o.fl., má nálgast á vef félagsins: https://www.heimar.is/fjarfestar/adrar-upplysingar/hluthafafundir/.
Kópavogur, 4. mars 2026
Stjórn Heima hf.