Måndag 28 September | 19:40:51 Europe / Stockholm

Heimar hf.: LEIÐRÉTTING: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

2026-09-28 19:03:00

Hinn 14. september sl. tilkynntu Heimar hf. um kaup á eigin hlutum samkvæmt endurkaupaáætlun í viku 37. Í tilkynningunni kom fram að keyptir hefðu verið 939.700 eigin hlutir að kaupvirði 32.134.890 eins og nánar kom fram í sundurliðun í tilkynningunni.

Heimum barst leiðréttar upplýsingar frá þjónustuaðila endurkaupaáætlunarinnar um að í þeirri viku hafi verið keyptir 1.114.000 eigin hlutir að kaupvirði 38.008.800 kr. samkvæmt sundurliðun hér að neðan. Þjónustuaðili Heima hafði láðst að tilkynna félaginu um viðskipti 11. september 2026 í samræmi við samning um framkvæmd endurkaupaáætlunar.
Viðskipti sem ekki voru tilgreind:

  • Dagsetning: 11. september 2025
  • Fjöldi hluta: 174.000
  • Gengi: 33,7
  • Kaupverð: 5.873.910 kr.

Leiðrétt yfirlit yfir viðskipti samkvæmt endurkaupaáætlun í viku 37 er eins og hér segir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð (kr.)
7.9.202609:44205.00034,507.072.500
8.9.202610:00210.00034,507.245.000
9.9.202614:43210.00034,007.140.000
10.9.202609:55240.00034,008.160.000
11.9.202610:0474.70033,702.517.390
11.9.202610:06174.30033,705.873.910
Samtals
1.114.000
38.008.800

Heildarfjöldi eigin hluta samkvæmt fyrrgreindri tilkynningu leiðréttist því þannig:

  • Heildarfjöldi eigin hluta eftir leiðréttingu: 29.989.000
  • Heildarkaupverð samkvæmt áætlun: 1.075.134.700 kr.

Endurkaupaáætlun félagsins hefur verið framhaldið síðan ofangreind tilkynning var upphaflega birt og er heildarfjöldi eigin hluta og heildarkaupverð eins og hér greinir:

Heildarfjöldi eigin hluta þann 28. september 2026 : 32.896.000
Heildarkaupverð samkvæmt áætlun þann 28. september 2026: 1.173.781.080

Leiðréttast hér með tilkynningar Heima hf. frá 21. september og 28. september 2026.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik, sem hefur lagagildi hér á landi sbr. lög nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052/EB sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupáætlanir.

Frekari upplýsingar veitir:
Björn Eyþór Benediktsson – Framkvæmdastjóri fjármála – eythorb@heimar.is