Í viku 22 keyptu Heimar hf. („Heimar“) 1.200.000 eigin hluti að kaupverði 43.020.000 kr., í samræmi við eftirfarandi:
| Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
| 26.5.2026 | 10:02 | 300.000 | 35,80 | 10.740.000 |
| 27.5.2026 | 15:21 | 300.000 | 35,80 | 10.740.000 |
| 28.5.2026 | 10:23 | 300.000 | 35,80 | 10.740.000 |
| 29.5.2026 | 09:39 | 300.000 | 36,00 | 10.800.000 |
| Samtals | 1.200.000 | 43.020.000 |
Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Heima sem tilkynnt var um þann 25. mars 2026. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 500.000.000 kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en til lok árs 2026.
Heimar áttu 23.700.000 hluti fyrir ofangreind viðskipti og á því að þeim loknum 24.900.000 hluti, eða um 1,27% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð keyptra hluta á árinu 2026 898.425.600 kr.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.
Nánari upplýsingar veitir Björn Eyþór Benediktsson – Framkvæmdastjóri fjármála – eythor@heimar.is