Måndag 8 Juni | 13:31:40 Europe / Stockholm
2026-06-08 10:58:00

Í viku 23 keyptu Heimar hf. („Heimar“) 1.500.000 eigin hluti að kaupverði 52.110.000 kr., í samræmi við eftirfarandi:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð (kr.)
1.6.202610:33300.00034,6010.380.000
2.6.202614:57300.00034,4010.320.000
3.6.202614:55300.00034,6010.380.000
4.6.202609:33300.00034,6010.380.000
5.6.202610:52300.00035,5010.650.000
Samtals
1.500.000
52.110.000

Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Heima sem tilkynnt var um þann 25. mars 2026. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 500.000.000 kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en til lok árs 2026.

Heimar áttu 24.900.000 hluti fyrir ofangreind viðskipti og á því að þeim loknum 26.400.000 hluti, eða um 1,34% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð keyptra hluta á árinu 2026 950.535.600 kr.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.

Nánari upplýsingar veitir Björn Eyþór Benediktsson – Framkvæmdastjóri fjármála – eythor@heimar.is