Heimar hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun
Í viku 39 keyptu Heimar hf. („Heimar“) 1.605.000 eigin hluti að kaupverði 55.046.500 kr., í samræmi við eftirfarandi:
| Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
| 21.9.2026 | 10:30 | 300.000 | 34,60 | 10.380.000 |
| 22.9.2026 | 09:59 | 320.000 | 34,60 | 11.072.000 |
| 23.9.2026 | 09:55 | 325.000 | 34,50 | 11.212.500 |
| 24.9.2026 | 09:32 | 340.000 | 34,30 | 11.662.000 |
| 25.9.2026 | 11:34 | 320.000 | 33,50 | 10.720.000 |
| Samtals | 1.605.000 | 55.046.500 |
Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Heima sem tilkynnt var um þann 28. ágúst 2026. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 500.000.000 kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en til lok árs 2026.
Heimar áttu 31.117.000 hluti fyrir ofangreind viðskipti og á því að þeim loknum 32.722.000 hluti, eða um 1,66% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð keyptra hluta á árinu 2026 1.167.907.170 kr.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.
Nánari upplýsingar veitir Björn Eyþór Benediktsson – Framkvæmdastjóri fjármála – eythor@heimar.is