Heimar hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun
Endurkaupum samkvæmt endurkaupaáætluninni, sem tilkynnt var um þann 28. ágúst 2026, er nú lokið.
Í viku 48 keyptu Heimar hf. („Heimar“) 241.075 eigin hluti að kaupverði 8.148.335 kr., í samræmi við eftirfarandi:
| Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
| 23.11.2026 | 14:41 | 3.000 | 33,80 | 101.400 |
| 24.11.2026 | 09:46 | 238.075 | 33,80 | 8.046.935 |
| Samtals | 241.075 | 8.148.335 |
Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Heima sem tilkynnt var um þann 28. ágúst 2026. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 500.000.000 kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en til lok árs 2026. Endurkaupum er nú lokið.
Heimar áttu 42.383.925 hluti fyrir ofangreind viðskipti og á því að þeim loknum 42.625.000 hluti, eða um 2,17% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð keyptra hluta á árinu 2026 1.499.759.053 kr.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.
Nánari upplýsingar veitir Björn Eyþór Benediktsson – Framkvæmdastjóri fjármála – eythor@heimar.is