Heimar hf.: Stækkun á skuldabréfaflokkunum HEIMAR50 GB og HEIMAR230628 GB
Heimar hf. („Heimar“ eða „félagið“) hefur í dag lokið við stækkun á tveimur skuldabréfaflokkum, HEIMAR50GB og HEIMAR230628 GB.
HEIMAR50 GB er grænn, verðtryggður skuldabréfaflokkur sem er veðtryggður með almennu tryggingarfyrirkomulagi félagsins. Seld voru skuldabréf að nafnverði 2.500 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 3,98% og verður heildarstærð flokksins því í kjölfar stækkunar að nafnverði 18.720 m.kr.
HEIMAR230628 GB er grænn, óverðtryggður flokkur og ber fljótandi vexti tengda þriggja mánaða REIBOR að viðbættu vaxtaálagi. Flokkurinn er veðtryggður með almennu tryggingarfyrirkomulagi félagsins. Seld voru skuldabréf að nafnvirði 1.400 m.kr. á pari, eða 0,90% vaxtaálagi. Heildarstærð flokksins í kjölfar stækkunarinnar verður að nafnverði 2.520 m.kr.
Áætlaður uppgjörsdagur viðskiptanna er 19. júní 2026 og verður í kjölfarið óskað eftir því að skuldabréfin verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq.
ACRO verðbréf hf. hafði umsjón með viðskiptunum og stækkun skuldabréfaflokkana.
Nánari upplýsingar veitir:
Björn Eyþór Benediktsson – Framkvæmdastjóri fjármála – eythor@heimar.is