Bifogade filer
Prenumeration
Beskrivning
| Land | Island |
|---|---|
| Lista | Mid Cap Iceland |
| Sektor | Tjänster |
| Industri | Fordon & Transport |
Vem äger bolaget?
All ägardata du vill ha finns i Holdings!
Icelandair flutti 342 þúsund farþega í mars 2026, 10% fleiri en í mars á síðasta ári. Í mánuðinum voru 39% á leið til Íslands, 22% frá Íslandi, 32% voru tengifarþegar og 7% ferðuðust innanlands.
Farþegum á leið til Íslands fjölgaði um 16% og farþegum frá Íslandi um 32%. Þetta er í takt við áherslur félagsins á þá markaði sem skila hæstum tekjum hverju sinni og sést árangurinn meðal annars í því að tekjur á hvern seldan sætiskílómetra jukust um 11%, en breytt samsetning farþega hafði þar mest áhrif.
Sætanýting var 83,5% og jafnaði met síðasta árs fyrir marsmánuð. Stundvísi var 75,4% en veður hafði umtalsverð áhrif á stundvísi í mánuðinum. Seldum blokktímum í leiguflugi fjölgaði um 45% og fraktflutningar, mældir í tonnkílómetrum jukust um 7%.
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair:
„Við sjáum áframhaldandi góðan árangur af áherslum okkar á vöxt yfir vetrartímann og á markaðina til og frá Íslandi. Þessi stefna skilar sér í minni árstíðasveiflu og gerir okkur kleift að beina framboðinu á þá markaði sem skila mestri framlegð hverju sinni. Í mánuðinum var 45% aukning í leiguflugsstarfseminni okkar sem styður einnig við minnkun árstíðasveiflunnar. Í mánuðinum hófum við flug til Faro í suðurhluta Portúgals og hafa viðskiptavinir tekið þessum nýja áfangastað mjög vel.
Eldsneytisverð hækkaði hratt í mánuðinum í kjölfar átaka í Mið-Austurlöndum. Við höfum brugðist við með margvíslegum aðgerðum, meðal annars ráðist í kostnaðaraðhald, endurskoðað fargjöld og aðlagað framboð í öðrum ársfjórðungi.
Krefjandi veðurskilyrði á Íslandi höfðu umtalsverð áhrif á flugáætlun okkar í seinni hluta mánaðarins. Ég vil þakka viðskiptavinum okkar fyrir skilninginn og samstarfið í þessum aðstæðum og starfsfólki Icelandair sem lagði sig fram um að lágmarka áhrifin og koma farþegum á öruggan hátt á áfangastað.“