Bifogade filer
Prenumeration
Beskrivning
| Land | Island |
|---|---|
| Lista | Mid Cap Iceland |
| Sektor | Tjänster |
| Industri | Fordon & Transport |
Vem äger bolaget?
All ägardata du vill ha finns i Holdings!
Icelandair flutti 402 þúsund farþega í aprílmánuði, 5% fleiri en í apríl í fyrra. Í mánuðinum voru 28% á leið til Íslands, 20% frá Íslandi, 46% voru tengifarþegar og 6% ferðuðust innanlands.
Mest aukning var á heimamarkaðinum en 16% fleiri farþegar ferðuðust frá Íslandi og 7% fleiri ferðuðust innanlands.
Sætanýting var 82,2%, 1,2 prósentustigum hærri en á síðasta ári, á sama tíma og framboðið jókst um 5%. Stundvísi var 80,8% og hafði slæmt veður á Íslandi í upphafi mánaðar áhrif á hana.
Kolefnislosun á hvern tonnkílómetra dróst saman um 3% vegna aukinnar nýtingar sparneytnari flugvéla. Seldum blokktímum í leiguflugi fækkaði um 1% og fraktflutningar, mældir í tonnkílómetrum drógust saman um 8% sem skýrist af minna framboði af frakt í farþegaleiðakerfinu til og frá Bandaríkjunum.
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair:
„Það er ánægjulegt að sjá áframhaldandi háa sætanýtingu og fjölgun farþega, sérstaklega á leiðinni frá Íslandi. Eins og undanfarna mánuði jókst framboð á milli ára, í takt við áherslur okkar á að minnka árstíðasveiflu í rekstrinum. Í sumar gerum við ráð fyrir að framboð verði lítið eitt minna en í fyrra.
Í ljósi yfirstandandi átaka í Miðausturlöndum og snarpra verðhækkana á eldsneyti, höfum við brugðist við með mótvægisaðgerðum, meðal annars með áframhaldandi kostnaðaraðhaldi, hækkun fargjalda og með því að draga flugframboð saman um 2% á öðrum ársfjórðungi, eins og þegar hefur verið tilkynnt. Að auki höfum við hafið vinnu við að draga framboðið saman um um það bil 5% í haust. Frekari aðlögun á flugáætlun er til skoðunar, þar með talið möguleg ákvörðun um að flýta útfösun á Boeing 757 vélum, sem eru ekki eins sparneytnar og nýrri flugvélategundir.
Í mánuðinum voru okkur veitt fern verðlaun fyrir þjónustu og vöruframboð um borð á Onboard og TravelPlus verðlaunahátíðunum. Þar að auki náði nýjasta auglýsingaherferð okkar, og farsælasta samfélagsmiðlaherferð okkar hingað til, augum 22 milljóna um allan heim. Þessi árangur er að þakka okkar frábæra starfsfólki sem leggur ríka áherslu á að veita framúrskarandi þjónustu og að kynna Ísland sem áfangastað.“