Bifogade filer
Prenumeration
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Mid Cap Iceland |
Sektor | Tjänster |
Industri | Fordon & Transport |
Aðalfundur Icelandair Group hf. verður haldinn miðvikudaginn 12. mars 2025, kl. 16:00 í höfuðstöðvum Icelandair, Flugvöllum 1, 221 Hafnarfirði.
Dagskrá og tillögur eru óbreytt frá fyrri tilkynningu félagsins, sem birt var þann 19. febrúar 2025, að undanskyldum texta um að lögð séu til óbreytt stjórnarlaun milli ára sem hefur verið fjarlægður. Þær fjárhæðir sem fram komu í upphaflegri tilkynningu eru óbreyttar.
Frestur til að skila inn framboðum til stjórnar rann út kl. 16:00 í dag. Eftirfarandi einstaklingar bjóða sig fram til stjórnar:
- Guðmundur Hafsteinsson, kennitala: 290875-3319
- John F. Thomas, kennitala: 250359-3409
- Matthew Evans, kennitala: 061086-5289
- Nina Jónsson, kennitala: 100567-3189
- Svafa Grönfeldt, kennitala: 290365-3769
Niðurstaða stjórnar Icelandair Group er sú að allir frambjóðendur séu óháðir félaginu og stjórnendum þess. Þá eru allir frambjóðendur óháðir stórum hluthöfum nema Matthew Evans sem kom inn í stjórn sem fulltrúi stærsta hluthafa félagsins.
Samkvæmt samþykktum félagsins kýs aðalfundur fimm aðila í stjórn félagsins. Þar sem einungis fimm einstaklingar hafa lýst yfir framboði, verða þessir frambjóðendur kjörnir í stjórn án atkvæðagreiðslu á fundinum. Frekari upplýsingar um frambjóðendur eru í meðfylgjandi skýrslu tilnefningarnefndar.
Eftirfarandi einstaklingar hafa lýst yfir framboði sínu til tilnefningarnefndar Icelandair Group á aðalfundinum:
- Alda Sigurðardóttir, kennitala: 170573-5019
- Georg Lúðvíksson, kennitala: 070376-4909
Samkvæmt samþykktum félagsins kýs aðalfundur tvo einstaklinga í tilnefningarnefnd. Þar sem einungis tveir einstaklingar hafa lýst yfir framboði, verða þessir frambjóðendur kjörnir í tilnefningarnefnd án atkvæðagreiðslu á fundinum.
Fundargögn og allar frekari upplýsingar um aðalfundinn, þar á meðal hlekkur til að skrá sig á fundinn, eru aðgengilegar á vefsíðu félagsins á https://www.icelandairgroup.com/agm
Frekari upplýsingar: Ari Guðjónsson, yfirlögfræðingur, tölvupóstur: ari@icelandair.is