Bifogade filer
Prenumeration
Beskrivning
| Land | Island |
|---|---|
| Lista | Mid Cap Iceland |
| Sektor | Tjänster |
| Industri | Fordon & Transport |
Vem äger bolaget?
All ägardata du vill ha finns i Holdings!
Icelandair Group hf. („Icelandair“) hefur gert uppfærðan samning við Arion banka hf. um viðskiptavakt með hlutabréf útgefin af félaginu og skráð eru á skipulegum verðbréfamarkaði Nasdaq Iceland sem tekur gildi frá og með 19. júní nk. Samhliða mun samningur Icelandair um viðskiptavakt við Íslandsbanka falla úr gildi.
Samkomulagið kveður á um að Arion banki skuli daglega gera kaup- og sölutilboð í hlutabréf Icelandair í viðskiptakerfi Kauphallar Íslands. Tilboðin skulu vera í tveimur pörtum þannig að verðbil kaup- og sölutilboða sem varða 8.000.000 hluti („A partur“) skal ákvarðað með hliðsjón af verðskrefatöflu Kauphallarinnar eins og hún er hverju sinni, á þann veg að verðbil verði sem næst 2,0% en þó ekki lægra en 1,95%. Verðbil kaup- og sölutilboða sem varða 2.000.000 hluti („B partur“) skal ákvarðað með hliðsjón af verðskrefatöflu Kauphallarinnar eins og hún er hverju sinni, á þann veg að verðbil verði ekki hærra en 1,50%. Þó er Arion banka vera heimilt að setja fram kaup- og sölutilboð í bæði A legg og B legg með lægra verðbili en að framan greinir, t.d. vegna aðstæðna sem skapast vegna verðskrefatöflu Kauphallarinnar.
Eigi Arion banki innan sama viðskiptadags viðskipti með hluti útgefanda, sem fara í gegnum veltubók Arion banka (markaðsvakt bankans), sem nema samtals 40.000.000 hluti að nafnvirði eða meira, falla niður framangreindar skyldur Arion banka um hámarksmun kaup- og sölutilboða innan þess dags. Ef verðbreyting á hlutabréfum útgefanda innan viðskiptadags er umfram 5% er Arion banka heimilt að tvöfalda framangreind verðbil og ef verðbreyting á hlutabréfunum er umfram 10% er Arion banka heimilt að þrefalda þau.
Samningurinn tekur að öðru leyti mið af reglugerð framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins 2017/578 frá 13. júní 2016 um tæknilega eftirlitsstaðla varðandi kröfur til samninga og kerfa um viðskiptavakt, sbr. 12. gr. 48. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2014/65/ESB um markaði fyrir fjármálagerninga sem hafa lagagildi hér á landi samkvæmt ákvæðum laga nr. 115/2021 um markaði fyrir fjármálagerninga.
Frekari upplýsingar veitir:
Ívar S. Kristinsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs. Tölvupóstur: isk@icelandair.is