Bifogade filer
Prenumeration
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Mid Cap Iceland |
Sektor | Tjänster |
Industri | Fordon & Transport |
Icelandair flutti 409 þúsund farþega í október, 12% fleiri en á sama tíma í fyrra. Þar af voru 35% á leið til Íslands, 17% frá Íslandi, 42% ferðuðust um Ísland og 6% innan Íslands. Eftirspurn eftir ferðum til Íslands hefur aukist á nýjan leik eftir minni eftirspurn mánuðina á undan. Sætanýting var 84,6%, ein sú hæsta í októbermánuði. Stundvísi var 84,4% og jókst um 4,2 prósentustig á milli ára. Það sem af er ári hefur Icelandair flutt yfir fjórar milljónir farþega, 8% fleiri en á sama tíma í fyrra.
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair:
„Það er mjög ánægjulegt að sjá aukningu á ferðalögum til Íslands á ný og enn og aftur hvernig sveigjanleikinn í leiðakerfinu nýtist til þess að leggja áherslu á þá markaði þar sem eftirspurn er mest hverju sinni. Að sama skapi er mikill kraftur í ferðalögum Íslendinga með Icelandair en 11% aukning var á markaðnum frá Íslandi á milli ára.
Stundvísi og sætanýting er áfram mjög góð auk þess sem viðskiptavinir halda áfram að gefa okkur háa einkunn í þjónustukönnunum. Sætanýting á Saga Premium var mjög góð í mánuðinum en varan hefur notið aukinna vinsælda að undanförnu. Leiguflugsstarfsemin hefur gengið mjög vel undanfarið og í október var 60% vöxtur í seldum blokktímum á milli ára, auk þess sem aukning var á tonnkílómetrum í fraktstarfseminni í fyrsta sinn í nokkra mánuði.