Bifogade filer
Prenumeration
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Mid Cap Iceland |
Sektor | Tjänster |
Industri | Fordon & Transport |
Icelandair flutti 251 þúsund farþega í febrúar 2025, 7% fleiri en á sama tíma í fyrra en flugframboð jókst sömuleiðis um 8%. Þar af voru 40% farþega á leið til Íslands, 20% frá Íslandi, 33% ferðuðust um Ísland og 7% innan Íslands. Sætanýting hefur aldrei verið betri í febrúarmánuði eða 79,8% og stundvísi nam 80,5%.
Tekjur á hvern seldan sætiskílómetra (yield) námu 8,0 bandarískum sentum og lækkuðu samanborið við febrúar á síðasta ári en betri sætanýting vó hins vegar upp á móti þessari lækkun, sem skilaði sér í svipuðum farþegaeiningatekjum og í fyrra.
Seldir blokktímar í leiguflugi voru 27% fleiri en í febrúar í fyrra en fraktflutningar drógust saman um 10%. Kolefnislosun á hvern tonnkílómetra dróst saman um 6% samanborið við febrúar í fyrra vegna betri sætanýtingar og fleiri ferða á hagkvæmari B737 MAX og A321 LR vélum.
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair:
„Það er ánægjulegt að geta enn og aftur greint frá jákvæðri þróun í farþegatölum okkar, sem endurspeglar mikið traust viðskiptavina til Icelandair og virði okkar þjónustu. Sætanýting í febrúar var met, á sama tíma og framboð jókst um 8% milli ára. Þá hófum við farmiðasölu með nýjasta samstarfsfélagi okkar, Southwest Airlines. Samstarfið opnar nýja og betri tengimöguleika fyrir farþega við fjölda markaða í Norður-Ameríku, fyrst um sinn í gegnum Baltimore flugvöll. Nú þegar höfum við fengið bókanir frá 43 flugvöllum í Bandaríkjunum. Við hlökkum til sumarvertíðarinnar og er undirbúningur nú þegar í fullum gangi. Við tókum á móti annarri Airbus flugvél í lok síðustu viku og gerum við ráð fyrir því að taka á móti tveimur vélum til viðbótar á næstu mánuðum.“