Bifogade filer
Prenumeration
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Mid Cap Iceland |
Sektor | Tjänster |
Industri | Fordon & Transport |
Icelandair flutti yfir 300 þúsund farþega í nóvember, 6,4% fleiri en á sama tíma í fyrra. Þar af voru 34% farþega á leið til Íslands, 19% frá Íslandi, 41% ferðuðust um Ísland og 6% innan Íslands. Það sem af er ári hefur Icelandair flutt 4,3 milljónir farþega, 8% fleiri en á sama tíma á síðasta ári. Stundvísi í leiðakerfinu var 84,7%. Metsætanýting var í nóvember eða 82,4% og jókst hún um sjö prósentustig á milli ára. Aukin sætanýting í mánuðinum er sambland af mikilli eftirspurn í ár og veikari eftirspurn í nóvember í fyrra sem skýrðist af áhrifum jarðhræringanna á Reykjanesi. Mikil eftirspurn var í innanlandsflugi en vegna veðurs á Íslandi í nóvember fækkaði flugferðum innanlands um 15% sem hafði áhrif á farþegafjölda í mánuðinum. Kolefnislosun á hvern tonnkílómetra dróst saman um 15% samanborið við nóvember í fyrra vegna fleiri ferða á MAX vélum og góðrar sætanýtingar.
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair:
„Það er ánægjulegt að sjá hlutfall farþega til Íslands halda áfram að aukast. Auk þess var mikill kraftur í ferðalögum Íslendinga út fyrir landsteinana en 8% aukning var á markaðnum frá Íslandi á milli ára. Stundvísi og sætanýting er áfram mjög góð, sem staðfestir styrk og áreiðanleika leiðakerfisins. Leiguflugsstarfsemin okkar er mikilvæg til þess að auka nýtingu flugvéla yfir vetrartímann og það var ánægjulegt að sjá umtalsverða aukningu í þeim hluta rekstrarins á milli ára.
Fyrr í vikunni tókum við á móti fyrstu Airbus flugvélinni í sögu Icelandair. Um er að ræða mikil tímamót og við erum spennt fyrir því að hefja áætlunarflug á þessari glænýju og hagkvæmu vél í næstu viku.“