Måndag 8 Juni | 13:30:22 Europe / Stockholm
2026-06-08 11:00:00

Icelandair flutti 464 þúsund farþega í maí, 4% fleiri en í sama mánuði í fyrra. Í mánuðinum voru 30% á leið til Íslands, 19% frá Íslandi, 45% voru tengifarþegar og 5% ferðuðust innanlands.

Farþegum á leið til Íslands fjölgaði um 8% og farþegum frá Íslandi um 24%, í takt við áherslu félagsins  á þessa markaði sem skila sem stendur hærri einingatekjum. Sætanýting var 83%, sem er met fyrir maímánuð og jókst hún um 3,4 prósentustig á milli ára. Stundvísi var 82,3%.

Seldum blokktímum í leiguflugi fækkaði um 2% á milli ára og fraktflutningar, mældir í tonnkílómetrum jukust um 4%.

Kolefnislosun á hvern tonnkílómetra dróst saman um 8% sem skýrist af aukinni nýtingu sparneytnari flugvéla, áframhaldandi áherslu á umbætur í rekstri og hárri sætanýtingu.

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair:
„Eftirspurn var sterk í maí sem endurspeglast í metsætanýtingu og áframhaldandi vexti á mörkuðunum til og frá Íslandi. Að ná svo góðri sætanýtingu í maí, sem er sögulega krefjandi upptaktur að sumaráætlun félagsins, endurspeglar góðan árangur í að fanga eftirspurn og samhæfa áætlunina að mörkuðum í aðdraganda háannatímans. Við höfum brugðist við áframhaldandi háu eldsneytisverði með því að aðlaga framboð og leggja áherslu á aðgerðir til þess að auka skilvirkni, meðal annars með því að flýta endurnýjun flugflotans eins og áður hefur verið tilkynnt um.

Við höfum fengið mjög góðar viðtökur við flugi okkar til Feneyja sem hófst í mánuðinum en það styrkir enn frekar framboð okkar á spennandi áfangastöðum. Við höldum áfram að leggja okkar lóð á vogarskálarnar til þess að vekja áhuga á Íslandi sem áfangastað, þar á meðal með því að auglýsa eftir versta ljósmyndara í heimi. Viðbrögðin fóru fram úr væntingum en við fengum tæplega 130 þúsund umsóknir frá 178 löndum. Ljósmyndarinn sem varð fyrir valinu mun hjálpa okkur að sanna þá kenningu okkar að það sé nánast ómögulegt að taka slæma ljósmynd af íslenskri náttúru.“