Bifogade filer
Prenumeration
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Mid Cap Iceland |
Sektor | Tjänster |
Industri | Fordon & Transport |
Í maí 2025 flutti Icelandair 448 þúsund farþega sem er 13% aukning miðað við maí á síðasta ári. Það sem af er ári hefur Icelandair flutt rúmlega 1,6 milljónir farþega. Í mánuðinum voru 29% farþega á leið til Íslands, 16% frá Íslandi, 50% voru tengifarþegar og 5% ferðuðust innanlands.
Eftirspurn á markaðnum til Íslands var góð í mánuðinum og fjölgaði farþegum um 18%. Sætanýting nam 79,6% og stundvísi var 84,1%. Tekjur á hvern seldan sætiskílómetra (e. yield) lækkuðu um um 2% á milli ára, sem skýrist af lækkun almennra fargjalda á Norður-Atlantshafsmarkaði þar sem mikil samkeppni ríkir.
Seldir blokktímar í leiguflugi jukust um 10%. Fraktflutningar jukust um 2% miðað við maí í fyrra. Kolefnislosun minnkaði um 4% á tonnkílómetra.
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair:
„Við sjáum áframhaldandi góðar farþegatölur og það er sérlega ánægjulegt að sjá aukninguna á markaðnum til Íslands. Þróunin er í takt við aukna áherslu okkar á arðbærari markaðina til og frá Íslandi. Við höldum áfram að ná framúrskarandi stundvísi sem er að þakka áherslu okkar á skilvirkni í rekstrinum og frábærri frammistöðu starfsfólks félagsins.
Við undirrituðum nýlega samstarfssamning við Air India sem mun opna spennandi tengingar á milli Íslands og Indlands auk þess sem við tilkynntum um aukið samstarf við Southwest og Turkish Airlines. Í maí tilkynntum við um tvo nýja vetraráfangastaði, Edinborg og Malaga og lengdum flugtímabilið til Nashville inn í janúar. Í síðustu viku tókum við á móti fjórðu Airbus vélinni. Þessar nýju og hagkvæmu flugvélar skapa spennandi framtíðartækifæri fyrir okkar öfluga leiðakerfi.“