Onsdag 6 Maj | 18:12:07 Europe / Stockholm

Prenumeration

Kalender

Est. tid*
2027-02-04 10:05 Bokslutskommuniké 2026
2026-11-22 11:05 Kvartalsrapport 2026-Q3
2026-07-21 11:05 Kvartalsrapport 2026-Q2
2026-04-28 - Kvartalsrapport 2026-Q1
2026-01-30 - Bokslutskommuniké 2025
2025-10-24 - Kvartalsrapport 2025-Q3
2025-07-18 - Kvartalsrapport 2025-Q2
2025-04-30 - Kvartalsrapport 2025-Q1
2025-03-12 - Årsstämma
2025-01-31 - Bokslutskommuniké 2024
2024-10-22 - Kvartalsrapport 2024-Q3
2024-07-17 - Kvartalsrapport 2024-Q2
2024-04-25 - Kvartalsrapport 2024-Q1
2024-03-07 - Årsstämma
2024-03-07 - X-dag ordinarie utdelning ICEAIR 0.00 ISK
2024-02-01 - Bokslutskommuniké 2023
2023-10-19 - Kvartalsrapport 2023-Q3
2023-07-20 - Kvartalsrapport 2023-Q2
2023-04-28 - Kvartalsrapport 2023-Q1
2023-03-09 - Årsstämma
2023-02-02 - Bokslutskommuniké 2022
2022-10-20 - Kvartalsrapport 2022-Q3
2022-07-21 - Kvartalsrapport 2022-Q2
2022-04-28 - Kvartalsrapport 2022-Q1
2022-03-03 - Årsstämma
2022-02-03 - Bokslutskommuniké 2021
2021-10-21 - Kvartalsrapport 2021-Q3
2021-07-22 - Kvartalsrapport 2021-Q2
2021-04-29 - Kvartalsrapport 2021-Q1
2021-03-15 - X-dag ordinarie utdelning ICEAIR 0.00 ISK
2021-03-12 - Årsstämma
2021-02-08 - Bokslutskommuniké 2020
2020-10-27 - Kvartalsrapport 2020-Q3
2020-07-27 - Kvartalsrapport 2020-Q2
2020-05-11 - X-dag ordinarie utdelning ICEAIR 0.00 ISK
2020-05-01 - Kvartalsrapport 2020-Q1
2020-02-07 - Bokslutskommuniké 2019
2019-05-10 - X-dag ordinarie utdelning ICEAIR 0.00 ISK
2019-02-07 - Bokslutskommuniké 2018
2017-03-06 - X-dag ordinarie utdelning ICEAIR 0.11 ISK
2016-03-11 - X-dag ordinarie utdelning ICEAIR 0.70 ISK
2015-03-11 - Årsstämma
2015-02-05 - Bokslutskommuniké 2014
2014-10-31 - Analytiker möte 2014
2014-10-30 - Kvartalsrapport 2014-Q3
2014-07-31 - Kvartalsrapport 2014-Q2
2014-04-30 - Kvartalsrapport 2014-Q1
2014-03-11 - Årsstämma
2014-02-06 - Bokslutskommuniké 2013
2013-10-31 - Analytiker möte 2013
2013-10-31 - Kvartalsrapport 2012-Q3
2013-10-30 - Kvartalsrapport 2013-Q3
2013-07-31 - Kvartalsrapport 2013-Q2
2013-05-02 - Kvartalsrapport 2013-Q1
2013-03-13 - Årsstämma
2013-02-08 - 15-7 2013
2013-02-07 - Bokslutskommuniké 2012
2012-11-01 - 15-7 2012
2011-03-18 - Årsstämma

Beskrivning

LandIsland
ListaMid Cap Iceland
SektorTjänster
IndustriFordon & Transport
Icelandair Group är ett flygbolag. Bolaget erbjuder resmål till och från Island, med störst verksamhet inom den europeiska marknaden. Utöver erbjuds långdistansflyg till olika resmål i Nordamerika. Inom koncernen erbjuds, förutom passagerartransport, även diverse globala luftfartstjänster som frakt- och godshantering, samt olika paketerbjudanden som kombinerar upplevelse, flyg och boende.

Vem äger bolaget?

All ägardata du vill ha finns i Holdings!

2026-04-28 19:10:00
  • Met tekjur að fjárhæð 42,9 milljarðar króna (346,5 milljónir USD), aukning um 21%
  • Bætt rekstrarafkoma; EBIT tap að fjárhæð 6,6 milljarðar króna (53,3 milljónir USD), bæting um 1,1 milljarð króna (8,9 milljónir USD) á milli ára
  • Töluverð bæting á EBIT hlutfalli, neikvætt um 15,4% samanborið við 21,7% á síðasta ári
  • Tap eftir skatta nam 5,6 milljörðum króna (45,3 milljónum USD) samanborið við 6,1 milljarð króna (44,1 milljón USD) á síðasta ári, en jákvæð gengisáhrif komu til lækkunar á tapi síðasta árs
  • Hærri tekjur á hvern seldan sætiskílómetra og metsætanýting skiluðu 7% hækkun á einingatekjum
  • Bætt skilvirkni skilaði óbreyttum einingakostnaði milli ára, þrátt fyrir umtalsverðar launahækkanir og óhagstæða gengisþróun
  • Icelandair var meðal stundvísustu flugfélaga í Evrópu á fyrsta ársfjórðungi 2026, með 82,0% stundvísi (OTP)
  • Sterk lausafjárstaða að fjárhæð 77,0 milljarðar króna (616,3 milljónir USD) í lok
    1. ársfjórðungs, aukning um 14,2 milljarða króna (106,8 milljónir USD) samanborið við
    1. ársfjórðung 2025


Bogi Nils Bogason, forstjóri

„Við náðum árangri á mörgum sviðum á fyrsta ársfjórðungi. Við skiluðum met tekjum sem endurspeglar áherslur okkar á markaðina til og frá Íslandi sem skila betri framlegð við núverandi markaðsaðstæður en tengiflug yfir hafið. Við jukum flugframboð um 13% sem er í takt við stefnu okkar að nýta innviðina okkar betur. Þrátt fyrir þessa aukningu náðum við met sætanýtingu í fjórðungnum og vorum jafnframt eitt stundvísasta flugfélag í Evrópu þó svo talsverðar raskanir hafi orðið á flugáætlun vegna veðurs á Íslandi í marsmánuði. Tekjur af fraktstarfsemi jukust einnig á milli ára og afkoma af leiguflugi var góð í fjórðungnum. Gengisáhrif og launahækkanir höfðu neikvæð áhrif á kostnaðarþróun en við héldum áfram að leggja áherslu á stundvísi og hagræðingu í rekstri.

Snörp hækkun olíuverðs að undanförnu hafði ekki teljandi áhrif á afkomuna í fjórðungnum en við munum sjá meiri áhrif þessara hækkana frá og með öðrum ársfjórðungi. Til að bregðast við þessari stöðu höfum við dregið flugframboð saman um rúmlega 2% frá miðjum apríl til loka júní. Þá eru hækkanir á farmiðaverði óhjákvæmilegar og fargjöld hafa verið hækkuð frá því að þessi þróun eldsneytisverðs hófst. Þetta hefur þó ekki haft mælanleg áhrif á eftirspurn eins og staðan er í dag.

Ýmsar ytri aðstæður hafa áhrif á flugrekstur og því er mikilvægt að tryggja fyrirsjáanleika til lengri tíma í sem flestum rekstrarþáttum, svo sem kjarasamningum sem eru nú lausir. Áherslurnar í samningaviðræðum við flugstéttirnar eru að félagið geti áfram boðið eftirsótt störf í flugrekstri á Íslandi með því að tryggja samkeppnishæfni félagsins, styðja við vöxt leiðakerfisins og flotans, ásamt því að auka rekstrarlegan sveigjanleika. Auk þess á félagið í samtali við íslensk stjórnvöld um mikilvægi þess að verja samkeppnishæfni Íslands þegar kemur að evrópsku regluverki, sérstaklega er varðar ETS kerfið og önnur loftslagsgjöld.

Fjárhagsstaða félagsins er sterk og lausafjárstaðan hækkaði um 107 milljónir USD miðað við sama tíma í fyrra sem gerir okkur vel í stakk búin til að takast á við þær áskoranir sem framundan eru, ásamt áframhaldandi áherslu á kostnaðaraðhald og hagræðingu í rekstri. Að lokum vil ég þakka starfsfólki fyrir seiglu og frábæra vinnu, sérstaklega í kringum krefjandi aðstæður vegna veðurs í marsmánuði þar sem allir lögðust á eitt til að leysa úr flókinni stöðu með öryggi og hagsmuni farþega að leiðarljósi.“

Vefútsending 29. apríl 2026
Kynning á uppgjöri 1. ársfjórðungs 2026 verður í beinu streymi á https://icelandairgroup.com. Streymið hefst kl. 8:30 miðvikudaginn 29. apríl 2026 þar sem Bogi Nils Bogason forstjóri og Ívar S. Kristinsson framkvæmdastjóri fjármála munu fara yfir uppgjörið og svara spurningum. Fundurinn verður á ensku. Kynningin verður aðgengileg að fundi loknum á heimasíðu félagsins og undir fyrirtækjafréttum á heimasíðu Nasdaq Nordic: http://www.nasdaqomxnordic.com/news/companynews

Frekari upplýsingar veita

Fjárfestar: Íris Hulda Þórisdóttir, yfirmaður fjárfestatengsla. Netfang: iris@icelandair.is

Fréttamiðlar: Ásdís Ýr Pétursdóttir, forstöðumaður samskipta. Netfang: asdis@icelandair.is

Fjárhagsdagatal

  • 2. ársfjórðungur 2026 – 21. júlí 2026
  • 3. ársfjórðungur 2026 – 22. október 2026
  • 4. ársfjórðungur og árið 2026 – 4. febrúar 2027