05:15:42 Europe / Stockholm

Kurs & Likviditet

Kursutveckling och likviditet under dagen för detta pressmeddelande

Prenumeration

Kalender

2025-01-31 Bokslutskommuniké 2024
2024-10-22 Kvartalsrapport 2024-Q3
2024-07-17 Kvartalsrapport 2024-Q2
2024-04-25 Kvartalsrapport 2024-Q1
2024-03-07 Årsstämma 2024
2024-03-07 X-dag ordinarie utdelning ICEAIR 0.00 ISK
2024-02-01 Bokslutskommuniké 2023
2023-10-19 Kvartalsrapport 2023-Q3
2023-07-20 Kvartalsrapport 2023-Q2
2023-04-28 Kvartalsrapport 2023-Q1
2023-03-09 Årsstämma 2023
2023-02-02 Bokslutskommuniké 2022
2022-10-20 Kvartalsrapport 2022-Q3
2022-07-21 Kvartalsrapport 2022-Q2
2022-04-28 Kvartalsrapport 2022-Q1
2022-03-03 Årsstämma 2022
2022-02-03 Bokslutskommuniké 2021
2021-10-21 Kvartalsrapport 2021-Q3
2021-07-22 Kvartalsrapport 2021-Q2
2021-04-29 Kvartalsrapport 2021-Q1
2021-03-15 X-dag ordinarie utdelning ICEAIR 0.00 ISK
2021-03-12 Årsstämma 2021
2021-02-08 Bokslutskommuniké 2020
2020-10-27 Kvartalsrapport 2020-Q3
2020-07-27 Kvartalsrapport 2020-Q2
2020-05-11 X-dag ordinarie utdelning ICEAIR 0.00 ISK
2020-05-01 Kvartalsrapport 2020-Q1
2020-02-07 Bokslutskommuniké 2019
2019-05-10 X-dag ordinarie utdelning ICEAIR 0.00 ISK
2019-02-07 Bokslutskommuniké 2018
2017-03-06 X-dag ordinarie utdelning ICEAIR 0.11 ISK
2016-03-11 X-dag ordinarie utdelning ICEAIR 0.70 ISK
2015-03-11 Årsstämma 2015
2015-02-05 Bokslutskommuniké 2014
2014-10-31 Analytiker möte 2014
2014-10-30 Kvartalsrapport 2014-Q3
2014-07-31 Kvartalsrapport 2014-Q2
2014-04-30 Kvartalsrapport 2014-Q1
2014-03-11 Årsstämma 2014
2014-02-06 Bokslutskommuniké 2013
2013-10-31 Analytiker möte 2013
2013-10-31 Kvartalsrapport 2012-Q3
2013-10-30 Kvartalsrapport 2013-Q3
2013-07-31 Kvartalsrapport 2013-Q2
2013-05-02 Kvartalsrapport 2013-Q1
2013-03-13 Årsstämma 2013
2013-02-08 15-7 2013
2013-02-07 Bokslutskommuniké 2012
2012-11-01 15-7 2012
2011-03-18 Årsstämma 2011

Beskrivning

LandIsland
ListaMid Cap Iceland
SektorTjänster
IndustriFordon & Transport
Icelandair Group är ett flygbolag. Bolaget erbjuder resmål till och från Island, med störst verksamhet inom den europeiska marknaden. Utöver erbjuds långdistansflyg till olika resmål i Nordamerika. Inom koncernen erbjuds, förutom passagerartransport, även diverse globala luftfartstjänster som frakt- och godshantering, samt olika paketerbjudanden som kombinerar upplevelse, flyg och hotell.
2024-07-17 19:59:00
  • EBIT afkoma 457 milljónir króna (3,3 milljónir USD) og hagnaður eftir skatta 86 milljónir króna (0,6 milljónir USD) á 8% framboðsaukningu
  • Jákvæð kostnaðarþróun endurspeglast í 2,4% lækkun einingakostnaðar þrátt fyrir talsverða verðbólgu
  • Flotaendurnýjun, kostnaðaraðhald og aukin skilvirkni í rekstri höfðu áhrif til lækkunar á einingakostnaði
  • Hagræðingaraðgerðir í maí og júní munu skila um 1,4 milljarða króna (10 milljóna USD) sparnaði á ársgrundvelli
  • Jákvæður viðsnúningur í fraktstarfsemi nam 482 milljónum króna (3,4 milljónum USD)
  • Sterk lausafjárstaða í lok annars ársfjórðungs 64,8 milljarðar króna (465 milljónir USD)
  • Fjöldi farþega var 1,2 milljónir
  • Einingatekjur drógust saman vegna minni eftirspurnar eftir flugferðum til Íslands og harðnandi samkeppni á
    N-Atlantshafsmarkaðnum
  • Flug hafið á þrjá nýja áfangastaði – Pittsburgh, Halifax og Þórshöfn í Færeyjum
  • Icelandair var í fyrsta sæti á lista Cirium yfir stundvísustu flugfélög Evrópu í júnímánuði


Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair

„Flugreksturinn gengur vel, stundvísi hefur verið framúrskarandi fimm mánuði í röð og vorum við útnefnd stundvísasta flugfélag í Evrópu í júní. Það er mjög ánægjulegt að sjá að áhersla á aukna skilvirkni í rekstrinum er þegar farin að skila sér og endurspeglast í lækkun einingakostnaðar á öðrum ársfjórðungi, þrátt fyrir háa verðbólgu og kostnaðarhækkanir. Við höfum jafnframt náð góðum árangri í að bæta afkomu af fraktstarfseminni og leiguflugstarfsemi okkar heldur áfram að ganga vel sem og innanlandsflugið. Þessi árangur er að þakka samhentu átaki starfsfólks á öllum sviðum félagsins. Eftirspurn á ferðamannamarkaðnum til Íslands er ekki eins sterk og á síðasta ári en okkur hefur gengið mjög vel að nýta sveigjanleika leiðakerfisins og halda sætanýtingu á ásættanlegum stað með því að setja meiri áherslu á markaðinn yfir Atlantshafið. Breytt samsetning farþega hafði hins vegar áhrif á meðalfargjöld og þar með einingatekjur á öðrum ársfjórðungi.

Eftir mikið uppbyggingartímabil eftir Covid sem lauk á síðasta ári hefur áhersla okkar á þessu ári verið á aðgerðir til að ná fram aukinni skilvirkni í rekstrinum. Fjölmörg hagræðingarverkefni eru í vinnslu sem sum hver hafa þegar skilað árangri og gerum við ráð fyrir að sjá enn frekari árangur til lengri tíma. Við höldum jafnframt áfram að styrkja tekjumyndun hjá okkur og nýtum fjölbreytta tekjustrauma til þess. Við höfum meðal annars styrkt tekjugrunn félagsins með samstarfssamningum við tvö flugfélög á árinu – Emirates og TAP í Portúgal – en tekjur í gegnum slíkt samstarf nema í dag ríflega 10% af heildartekjum félagsins.

Við sjáum mikil tækifæri á næstu misserum og má þar nefna stækkun leiðakerfisins með nýjum, langdrægari flugvélum sem verða grunnurinn að áframhaldandi þróun Íslands sem ferðamannalands og tengimiðstöðvar milli Evrópu og Norður Ameríku. Þrátt fyrir tímabundnar sveiflur á milli ára hef ég fulla trú á tækifærum Íslands sem áfangastaðar og ekki síður því tengimódeli sem við höfum byggt hér upp síðustu áratugi. Markaðurinn til Íslands er þegar farinn að sýna jákvæð merki og við teljum að hann muni jafna sig á næstu misserum ef haldið er rétt á spilunum. Rekstraráherslur okkar munu gera okkur samkeppnishæfari, afkastameiri og skilvirkari, sem til viðbótar við mjög sterka lausafjárstöðu gerir okkur vel í stakk búin til að takast á við þau verkefni sem framundan eru og ná árangri til framtíðar.“

Vefútsending 18. júlí 2024

Kynning á uppgjöri 2. ársfjórðungs ársins 2024 verður í beinu streymi á https://icelandairgroup.com. Streymið hefst kl. 8:30 fimmtudaginn 18. júlí 2024 þar sem Bogi Nils Bogason forstjóri og Ívar S. Kristinsson framkvæmdastjóri fjármála munu fara yfir uppgjörið og svara spurningum. Fundurinn verður á ensku. Kynningin verður aðgengileg að fundi loknum á heimasíðu félagsins og undir fyrirtækjafréttum á heimasíðu Nasdaq Nordic: http://www.nasdaqomxnordic.com/news/companynews