Fredag 6 Februari | 00:20:00 Europe / Stockholm

Prenumeration

Kalender

Est. tid*
2026-01-30 - Bokslutskommuniké 2025
2025-10-24 - Kvartalsrapport 2025-Q3
2025-07-18 - Kvartalsrapport 2025-Q2
2025-04-30 - Kvartalsrapport 2025-Q1
2025-03-12 - Årsstämma
2025-01-31 - Bokslutskommuniké 2024
2024-10-22 - Kvartalsrapport 2024-Q3
2024-07-17 - Kvartalsrapport 2024-Q2
2024-04-25 - Kvartalsrapport 2024-Q1
2024-03-07 - Årsstämma
2024-03-07 - X-dag ordinarie utdelning ICEAIR 0.00 ISK
2024-02-01 - Bokslutskommuniké 2023
2023-10-19 - Kvartalsrapport 2023-Q3
2023-07-20 - Kvartalsrapport 2023-Q2
2023-04-28 - Kvartalsrapport 2023-Q1
2023-03-09 - Årsstämma
2023-02-02 - Bokslutskommuniké 2022
2022-10-20 - Kvartalsrapport 2022-Q3
2022-07-21 - Kvartalsrapport 2022-Q2
2022-04-28 - Kvartalsrapport 2022-Q1
2022-03-03 - Årsstämma
2022-02-03 - Bokslutskommuniké 2021
2021-10-21 - Kvartalsrapport 2021-Q3
2021-07-22 - Kvartalsrapport 2021-Q2
2021-04-29 - Kvartalsrapport 2021-Q1
2021-03-15 - X-dag ordinarie utdelning ICEAIR 0.00 ISK
2021-03-12 - Årsstämma
2021-02-08 - Bokslutskommuniké 2020
2020-10-27 - Kvartalsrapport 2020-Q3
2020-07-27 - Kvartalsrapport 2020-Q2
2020-05-11 - X-dag ordinarie utdelning ICEAIR 0.00 ISK
2020-05-01 - Kvartalsrapport 2020-Q1
2020-02-07 - Bokslutskommuniké 2019
2019-05-10 - X-dag ordinarie utdelning ICEAIR 0.00 ISK
2019-02-07 - Bokslutskommuniké 2018
2017-03-06 - X-dag ordinarie utdelning ICEAIR 0.11 ISK
2016-03-11 - X-dag ordinarie utdelning ICEAIR 0.70 ISK
2015-03-11 - Årsstämma
2015-02-05 - Bokslutskommuniké 2014
2014-10-31 - Analytiker möte 2014
2014-10-30 - Kvartalsrapport 2014-Q3
2014-07-31 - Kvartalsrapport 2014-Q2
2014-04-30 - Kvartalsrapport 2014-Q1
2014-03-11 - Årsstämma
2014-02-06 - Bokslutskommuniké 2013
2013-10-31 - Analytiker möte 2013
2013-10-31 - Kvartalsrapport 2012-Q3
2013-10-30 - Kvartalsrapport 2013-Q3
2013-07-31 - Kvartalsrapport 2013-Q2
2013-05-02 - Kvartalsrapport 2013-Q1
2013-03-13 - Årsstämma
2013-02-08 - 15-7 2013
2013-02-07 - Bokslutskommuniké 2012
2012-11-01 - 15-7 2012
2011-03-18 - Årsstämma

Beskrivning

LandIsland
ListaMid Cap Iceland
SektorTjänster
IndustriFordon & Transport
Icelandair Group är ett flygbolag. Bolaget erbjuder resmål till och från Island, med störst verksamhet inom den europeiska marknaden. Utöver erbjuds långdistansflyg till olika resmål i Nordamerika. Inom koncernen erbjuds, förutom passagerartransport, även diverse globala luftfartstjänster som frakt- och godshantering, samt olika paketerbjudanden som kombinerar upplevelse, flyg och boende.

Vem äger bolaget?

All ägardata du vill ha finns i Holdings!

2026-02-05 19:54:00
  • Met tekjur á árinu 223,6 milljarðar króna (1,7 milljarðar USD), aukning um 11% og um 17% í fjórða ársfjórðungi
  • EBIT tap ársins nam 2,2 milljörðum króna (17,2 milljónum USD), jókst um 289 milljónir króna (3 milljónir USD) en batnaði um 252 milljónir króna (2,0 milljónir USD) á fjórða ársfjórðungi
  • Verulegar breytingar í rekstrarumhverfinu höfðu áhrif á EBIT ársins, þar á meðal neikvæð gengisáhrif að fjárhæð 5,6 milljarðar króna (43,7 milljónir USD) vegna veikingar bandaríkjadals
  • Tap eftir skatta minnkaði á árinu 2025, nam 1,2 milljörðum króna (9,5 milljónum USD) samanborið við 2,8 milljarða króna (20,2 milljónir USD) árið 2024
  • Einingatekjur jukust um 2% á árinu og um 5% á fjórða ársfjórðungi
  • Met sætanýting og farþegafjöldi fór í fyrsta sinn yfir fimm milljónir á árinu
  • Icelandair eitt af stundvísustu flugfélögum í Evrópu árið 2025, með 83,9% stundvísi
  • Sterk lausafjárstaða að fjárhæð 57,6 milljarðar króna (457,8 milljónir) í lok ársins, aukning um 14,0 milljarða króna (111,0 milljónir USD) á milli ára
  • Áætlað er að umbótaverkefni sem ráðist hafði verið í við lok ársins muni skila yfir 12,8 milljörðum króna (100 milljónum USD) á ársgrundvelli


Bogi Nils Bogason, forstjóri
„Fjórði ársfjórðungur gekk að mörgu leyti vel en rekstrarniðurstaða ársins var ekki í takt við það sem við lögðum upp með í byrjun árs. Við erum þó á réttri leið og á árinu 2025 skiluðum við met tekjum, fluttum yfir fimm milljónir farþega í fyrsta sinn í sögu félagsins og hefur sætanýting aldrei verið betri. Þá náðum við framúrskarandi stundvísi sem gerði okkur að einu stundvísasta flugfélagi í Evrópu og það hefur meðal annars skilað sér í ánægju viðskiptavina. Einnig skiluðum við met tekjum af Saga Premium vörunni og styrktum stöðu okkar sem leiðandi tengiflugfélag í Keflavík. Við héldum áfram að hagræða í rekstrinum og bæta framleiðni, og höfðum í lok ársins ráðist í umbótaverkefni sem við gerum ráð fyrir að muni skila yfir 100 milljónum dala á ársgrundvelli þegar þau verða komin að fullu til framkvæmda. Þar að auki bættum við arðsemi á milli ára í frakt- og leiguflugsstarfsemi okkar.

Á móti kemur að þær miklu breytingar sem urðu á rekstrarumhverfi okkar á síðasta ári höfðu verulega neikvæð áhrif á afkomu félagsins. Umrót í alþjóðamálum leiddi til veikingar bandaríkjadals sem hafði bein áhrif á afkomuna og á eftirspurn til Íslands frá Norður-Ameríku, okkar stærsta markaði, sem og neikvæð áhrif á tekjumyndun á Atlantshafsmarkaðnum. Þá hafa launahækkanir á íslenskum vinnumarkaði verið langt umfram þá þróun sem við sjáum í nágrannalöndum okkar sem er mikil áskorun fyrir þjónustumiðaðar útflutningsgreinar sem eru að mestu með tekjur í erlendri mynt. Þar til viðbótar hafa umhverfisgjöld tvöfaldast á milli ára.

Við munum halda ótrauð áfram að bregðast við þessum áskorunum og gera nauðsynlegar breytingar til að bæta reksturinn á öllum sviðum. Eitt af okkar mikilvægustu verkefnum eru samningar við flugstéttirnar sem eru lausir um þessar mundir. Viðræðurnar nú snúast fyrst og fremst um að tryggja samkeppnishæfni félagsins, meðal annars með auknum sveigjanleika, sem og að Icelandair verði áfram eftirsóttur vinnustaður. Á sama tíma þurfa stjórnvöld að tryggja samkeppnishæfni Íslands með fyrirsjáanlegu rekstrarumhverfi og með því að verja hagsmuni landsins þegar kemur að evrópsku regluverki. Sterkar alþjóðlegar flugtengingar eru lykilinnviðir sem styðja hagvöxt, útflutning, ferðaþjónustu og erlenda fjárfestingu, sérstaklega fyrir eyju þar sem aðrir samgöngumöguleikar eru takmarkaðir. Þar gegnir Icelandair lykilhlutverki, en skattspor félagsins á árinu 2025 var yfir 40 milljarðar króna.

Það er spennandi ár framundan með áframhaldandi þróun leiðakerfisins og nýjum áhugaverðum áfangastöðum. Með skýrum áherslum okkar í rekstrinum og frekari umbótaverkefnum þegar í pípunum erum við vel í stakk búin til að skila hagnaði á þessu ári og styrkja félagið til framtíðar því það er sannarlega komið að því að hluthafar Icelandair uppskeri eftir að hafa staðið með félaginu í mörg ár. Að lokum vil ég þakka starfsfólki fyrir seigluna og vel unnin störf á árinu og viðskiptavinum okkar fyrir að velja Icelandair.“

Vefútsending 6. febrúar 2026
Kynning á uppgjöri 4. ársfjórðungs og ársins 2025 verður í beinu streymi á https://icelandairgroup.com. Streymið hefst kl. 8:30 föstudaginn 6. febrúar 2026 þar sem Bogi Nils Bogason forstjóri og Ívar S. Kristinsson framkvæmdastjóri fjármála munu fara yfir uppgjörið og svara spurningum. Fundurinn verður á ensku. Kynningin verður aðgengileg að fundi loknum á heimasíðu félagsins og undir fyrirtækjafréttum á heimasíðu Nasdaq Nordic: http://www.nasdaqomxnordic.com/news/companynews

 

Frekari upplýsingar veita
Fjárfestar: Íris Hulda Þórisdóttir, yfirmaður fjárfestatengsla. Netfang: iris@icelandair.is
Fréttamiðlar: Ásdís Ýr Pétursdóttir, forstöðumaður samskipta. Netfang: asdis@icelandair.is
Fjárhagsdagatal

  • Aðalfundur, 12. mars 2026
  • Ársfjórðungur 2026 – 28. apríl 2026
  • Ársfjórðungur 2026 – 21. júlí 2026
  • Ársfjórðungur 2026 – 22. október 2026
  • Ársfjórðungur og árið 2026 – 4. febrúar 2027