Prenumeration
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Large Cap Iceland |
Sektor | Finans |
Industri | Storbank |
Stjórn Íslandsbanka hf. boðar til aðalfundar bankans sem haldinn verður mánudaginn 31. mars 2025, kl. 16:00, í fundarsalnum Háteig á Hótel Reykjavík Grand, Sigtúni 28, 105 Reykjavík. Jafnframt er gefinn kostur á rafrænni þátttöku á fundinum. Atkvæðagreiðsla á fundinum mun alfarið fara fram rafrænt, óháð því hvort hluthafar mæta á fundarstað eða taka þátt rafrænt. Fundurinn fer fram á íslensku, en boðið verður upp á túlkaþjónustu á ensku.
Eftirfarandi mál eru á dagskrá fundarins:
- Skýrsla stjórnar um rekstur og starfsemi bankans síðastliðið rekstrarár
- Staðfesting ársreiknings bankans og samstæðureiknings fyrir næstliðið rekstrarár
- Ákvörðun um greiðslu arðs
- Kosning stjórnar, varastjórnar bankans og formanns stjórnar
Upplýsingar um frambjóðendur og skýrsla tilnefningarnefndar bankans verður birt samhliða fundarboði þessu á Nasdaq Iceland og á vefsíðu bankans www.islandsbanki.is/hluthafafundir
- Kosning endurskoðanda
- Ákvörðun um þóknun stjórnarmanna bankans og laun nefndarmanna í undirnefndum stjórnar
- Tillaga um breytingar á starfskjarastefnu bankans
- Tillaga um lækkun hlutafjár með ógildingu eigin hluta og samsvarandi breytingu á samþykktum félagsins
Tillagan felur í sér að hlutafé bankans verði lækkað um 597.646.150 kr. að nafnverði, eða sem nemur 119.529.230 hlutum, úr 10.000.000.000 kr. í 9.402.353.850 kr. að nafnverði. Lækkunin verður framkvæmd með ógildingu eigin hluta bankans að framangreindri fjárhæð, að uppfylltum viðeigandi skilyrðum laga. Tillagan felur í sér samsvarandi breytingu á ákvæði greinar 2.1 samþykkta félagsins.
- Tillaga um heimild til kaupa á eigin hlutum og samsvarandi breytingu á samþykktum bankans
Ef tillagan er samþykkt felur hún það í sér að stjórn bankans verði veitt heimild til að kaupa allt að 10% af hlutafé bankans í þeim tilgangi að setja upp endurkaupaáætlun eða til að gera hluthöfum almennt tilboð um kaup bankans á eigin bréfum. Heimildin mun gilda í 18 mánuði frá aðalfundardegi árið 2025. Framkvæmd endurkaupa er háð fyrirfram samþykki Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands.
- Ákvörðun um þóknun nefndarmanna í tilnefningarnefnd bankans
- Kosning tveggja nefndarmanna og eins varamanns í tilnefningarnefnd bankans
- Kosning utanaðkomandi nefndarmanns í endurskoðunarnefnd bankans
- Önnur mál
Á vefsíðu bankans, www.islandsbanki.is/hluthafafundir, er að finna skjal sem rekur fyrirhugaðar breytingar á samþykktum bankans og starfskjarastefnu, sem og hreint eintak af samþykktunum og starfskjarastefnu með þeim breytingum sem lagðar eru til undir dagskrárliðum 7, 8 og 9.
Aðrar upplýsingar
Öllum hluthöfum er heimilt að sækja aðalfund, taka þar til máls og neyta atkvæðisréttar síns. Rétt til setu á aðalfundi hafa, auk hluthafa og umboðsmanna þeirra, endurskoðandi, stjórnarmenn og bankastjóri. Hafa þeir þar fullt málfrelsi og tillögurétt. Skal nefndarmönnum undirnefnda stjórnar jafnframt heimilt að sitja fundinn. Stjórnin getur einnig boðið sérfræðingum setu á fundinum. Hluthafa er heimilt að sækja fund ásamt ráðgjafa, en slíkur ráðgjafi hefur hvorki tillögurétt né atkvæðisrétt á fundinum. Hluthafa er þó heimilt að gefa ráðgjafa sínum orðið fyrir sína hönd. Þá er fulltrúum Fjármáleftirlits Seðlabanka Íslands heimilt að sitja fundinn, en slíkir fulltrúar hafa hvorki tillögurétt né atkvæðisrétt á fundinum.
Gefinn er kostur á þátttöku á fundinum með rafrænum hætti, með Lumi AGM veflausninni þar sem beint vefstreymi frá fundinum verður aðgengilegt auk þess sem að hluthafar geta borið upp skriflegar spurningar. Rafræn þátttaka jafngildir mætingu á fundinn og veitir rétt til þátttöku á honum að öðru leyti. Atkvæðagreiðsla mun alfarið fara fram rafrænt í gegnum Lumi AGM veflausnina án tillits til þess hvort hluthafar mæta á fundarstað eða taka þátt rafrænt. Hægt verður að greiða atkvæði í tölvu, spjaldtölvu eða snjallsíma. Ekki verður gefinn kostur á rafrænni atkvæðagreiðslu fyrir auglýstan tíma aðalfundar.
Aðilar sem eru skráðir hluthafar í hlutaskrá skv. hluthafakerfi bankans þegar aðalfundur fer fram geta beitt réttindum sínum á aðalfundi. Hluthöfum er heimilt að láta umboðsmann sækja aðalfundinn og fara þar með atkvæðisrétt fyrir sína hönd. Hluthafar einir bera ábyrgð á því hverjum þeir veita umboð eða afhenda aðgangsupplýsingar. Á vefsíðu bankans, www.islandsbanki.is/hluthafafundir, má finna sniðmát af umboði sem hluthöfum er bent á að nýta sér. Umboð gilda einungis til fundarsetu á einum hluthafafundi nema annað sé skýrlega tekið fram í efni umboðsins. Hluthöfum, sem jafnframt eru lögaðilar eða hyggjast láta umboðsmann sækja aðalfundinn, er bent á að tryggja að sá aðili hafi til þess heimild.
Til þess að hægt sé að tryggja tímanlega úrvinnslu á beiðnum hluthafa um aðgangsupplýsingar eru hluthafar eða umboðsmenn hluthafa sem hafa hug á því að sækja fundinn, hvort sem er rafrænt eða á staðnum, beðnir um að skrá sig á heimasíðunni https://www.lumiconnect.com/meeting/islandsbankiagm2025, eigi síðar en kl. 16:00 þann 30. mars 2025, eða degi fyrir fundardag. Með innskráningu þarf að fylgja mynd af skilríkjum og umboð, ef við á. Sama gildir ef hluthafar vilja leggja fram skriflegar spurningar varðandi dagskrá eða framlögð skjöl sem þeir óska svara við á fundinum. Þær skulu sendar á netfangið hluthafar@islandsbanki.is.
Þeir hluthafar sem óska eftir því að fá tiltekið mál tekið til meðferðar á aðalfundinum, skulu senda kröfu um slíkt á netfangið hluthafar@islandsbanki.is í síðasta lagi tíu dögum fyrir boðaðan aðalfund, eða í síðasta lagi fyrir kl. 16:00 þann 21. mars 2025. Kröfu um slíkt skal fylgja rökstuðningur eða drög að ályktun fundarins.
Á fundarboðsdegi er hlutafé Íslandsbanka kr. 10.000.000.000 krónur og skiptist í 2.000.000.000 hluti hver að nafnvirði fimm (5) krónur eða margfeldi þeirrar fjárhæðar. Á hluthafafundi fylgir eitt atkvæði hverri krónu nafnverðs hlutafjár. Eigin bréf bankans njóta ekki atkvæðisréttar. Hluthafafundur telst lögmætur, án tillits til fundarsóknar, ef löglega var til hans boðað og fundurinn er sóttur af einum eða fleiri hluthöfum.
Dagskrá, tillögur stjórnar til aðalfundar, ársreikningur fyrir árið 2024, upplýsingar um hvernig hluthafar geta nálgast aðgangsupplýsingar og um framkvæmd rafrænnar atkvæðagreiðslu og önnur skjöl sem lögð verða fyrir aðalfundinn er að finna á vefsíðu bankans, www.islandsbanki.is/hluthafafundir, og eru aðgengileg í höfuðstöðvum bankans. Fundargögn eru aðgengileg bæði á íslensku og á ensku. Sé misræmi milli fundargagna á ensku annars vegar og íslensku hins vegar, gildir íslenska útgáfan.
Kópavogur, 7. mars 2025
Stjórn Íslandsbanka hf.