Prenumeration
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Large Cap Iceland |
Sektor | Finans |
Industri | Storbank |
Íslandsbanki mun birta afkomu fyrir fjórða ársfjórðung 2024 og ársuppgjör 2024 eftir lokun markaða þann 13. febrúar 2025. Rafrænn afkomufundur verður föstudaginn 14. febrúar klukkan 8.30.
Íslandsbanki mun halda rafrænan afkomufund föstudaginn 14. febrúar 2024 kl. 8.30 fyrir fjárfesta og markaðsaðila. Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri og Ellert Hlöðversson, fjármálastjóri munu kynna afkomu bankans og helstu atriði í rekstri hans á ársfjórðungnum og árinu í heild. Fundurinn fer fram á ensku.
Fundurinn verður aðgengilegur í gegnum hlekk á vefsvæði fjárfestatengsla á vef bankans. Upptaka af fundinum verður aðgengileg á sama stað að honum loknum. Þátttaka, og möguleikinn á að bera fram skriflegar spurningar, fer fram á þessari síðu. Markaðsaðilar geta einnig hringt inn á fundinn og lagt fram spurningar munnlega með því að skrá sig á þessari síðu. Að skráningu lokinni færðu afhent símanúmer og auðkenni fyrir fundinn. Allar upplýsingar um fundinn má finna hér.