Bifogade filer
Prenumeration
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Large Cap Iceland |
Sektor | Finans |
Industri | Storbank |
Íslandsbanki mun birta afkomu fyrir þriðja ársfjórðung 2023 eftir lokun markaða þann 26. október 2023. Rafrænn afkomufundur verður föstudaginn 27. október kl. 8.30.
Íslandsbanki mun halda rafrænan afkomufund föstudaginn 27. október kl. 8.30 fyrir fjárfesta og markaðsaðila. Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri og Bjarney Anna Bjarnadóttir, fjárfestatengill munu kynna afkomu bankans á þriðja ársfjórðungi ársins 2023 og helstu atriði í rekstri hans. Fundurinn fer fram á ensku.
Fundurinn verður aðgengilegur í gegnum hlekk á vefsvæði fjárfestatengsla á vef bankans. Upptaka af fundinum verður aðgengileg á sama stað að honum loknum. Þátttaka, og möguleikinn á að bera fram skriflegar spurningar, fer fram á þessari síðu. Markaðsaðilar geta einnig hringt inn á fundinn og lagt fram spurningar munnlega með því að skrá sig á þessari síðu. Að skráningu lokinni færðu afhent símanúmer og auðkenni fyrir fundinn. Allar upplýsingar um fundinn má finna hér.