Lördag 26 Oktober | 01:57:15 Europe / Stockholm
2024-10-16 18:30:00

Íslandsbanki mun birta afkomu fyrir þriðja ársfjórðung 2024 eftir lokun markaða þann 23. október 2024. Rafrænn afkomufundur verður fimmtudaginn 24. október 2024 klukkan 8.30.

Rafrænn afkomufundur verður fimmtudaginn 24. október 2024 klukkan 8.30.

Íslandsbanki mun halda rafrænan afkomufund fimmtudaginn 24. október 2024 kl. 8.30 fyrir fjárfesta og markaðsaðila. Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri og Ellert Hlöðversson, fjármálastjóri munu kynna afkomu bankans og helstu atriði í rekstri hans á ársfjórðungnum. Fundurinn fer fram á ensku.

Fundurinn verður aðgengilegur í gegnum hlekk á vefsvæði fjárfestatengsla á vef bankans. Upptaka af fundinum verður aðgengileg á sama stað að honum loknum. Þátttaka, og möguleikinn á að bera fram skriflegar spurningar, fer fram á þessari síðu. Markaðsaðilar geta einnig hringt inn á fundinn og lagt fram spurningar munnlega með því að skrá sig á þessari síðu. Að skráningu lokinni færðu afhent símanúmer og auðkenni fyrir fundinn. Allar upplýsingar um fundinn má finna hér.