Íslandsbanki birtir afkomu þriðja ársfjórðungs 2026 þann 29. október 2026. Rafrænn afkomufundur verður föstudaginn 30. október 2026
Íslandsbanki mun birta afkomu þriðja ársfjórðungs 2026 eftir lokun markaða þann 29. október 2026. Rafrænn afkomufundur verður haldinn föstudaginn 30. október klukkan 8.30.
Íslandsbanki mun halda rafrænan afkomufund föstudaginn 30. október kl. 8.30 fyrir fjárfesta og markaðsaðila. Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri og Ellert Hlöðversson, fjármálastjóri munu kynna afkomu bankans og helstu atriði í rekstri hans á ársfjórðungnum. Fundurinn fer fram á ensku.
Fundurinn verður aðgengilegur í gegnum hlekk á vefsvæði fjárfestatengsla á vef bankans. Upptaka af fundinum verður aðgengileg á sama stað að honum loknum. Þátttaka, og möguleikinn á að bera fram skriflegar spurningar, fer fram hér. Markaðsaðilar geta einnig hringt inn á fundinn og lagt fram spurningar munnlega með því að skrá sig á þessari síðu. Að skráningu lokinni færðu afhent símanúmer og auðkenni fyrir fundinn.