Torsdag 7 Maj | 21:24:41 Europe / Stockholm

Prenumeration

Kalender

Est. tid*
2023-10-26 - Kvartalsrapport 2023-Q3
2023-07-27 - Kvartalsrapport 2023-Q2
2023-05-04 - Kvartalsrapport 2023-Q1
2023-02-09 - Bokslutskommuniké 2022
2022-10-27 - Kvartalsrapport 2022-Q3
2022-07-28 - Kvartalsrapport 2022-Q2
2022-05-05 - Kvartalsrapport 2022-Q1
2022-03-17 - Årsstämma
2022-02-10 - Bokslutskommuniké 2021
2021-10-28 - Kvartalsrapport 2021-Q3
2021-07-28 - Kvartalsrapport 2021-Q2
2021-05-05 - Kvartalsrapport 2021-Q1

Beskrivning

LandIsland
ListaLarge Cap Iceland
SektorFinans
IndustriStorbank
Íslandsbanki är verksamma inom finanssektorn. Idag erbjuder banken ett brett utbud av finansiella tjänster, huvudsakligen inriktat mot små- och medelstora företagskunder. Tjänsteutbudet är brett och inkluderar exempelvis kapitalförvaltning samt lånefinansiering. Utöver huvudverksamheten erbjuds diverse kringtjänster. Bolaget bedriver verksamhet runtom den isländska hemmamarknaden.

Vem äger bolaget?

All ägardata du vill ha finns i Holdings!

2026-05-07 17:51:00

Hagnaður af rekstri nam 7,5 milljörðum króna á fyrsta ársfjórðungi 2026. Arðsemi eigin fjár á fyrsta ársfjórðungi var 13,6% á ársgrundvelli.

HELSTU ATRIÐI Í AFKOMU ÍSLANDSBANKA

Helstu atriði í fjárhagslegri afkomu fyrsta ársfjórðungs 2026 (1F26)

  • Hagnaður af rekstri nam 7,5 milljörðum króna á fyrsta ársfjórðungi 2026 (1F25: 5,2 milljarðar króna). Arðsemi eigin fjár á fyrsta ársfjórðungi var 13,6% á ársgrundvelli (1F25: 9,4%).
  • Hreinar vaxtatekjur námu 17,1 milljörðum króna á fyrsta ársfjórðungi 2026 og hækkuðu um 4,2 milljarða króna á 1F26 samanborið við 1F25.
  • Vaxtamunur var 3,9% á fyrsta ársfjórðungi 2026, samanborið við 3,2% á 1F25. 
  • Hreinar þóknanatekjur á fyrsta ársfjórðungi 2026 voru 3,3 milljarðar króna, sem er aukning um 6,6% samanborið við 1F25.
  • Hrein fjármagnsgjöld voru 213 milljónir króna á fyrsta ársfjórðungi 2026, samanborið við fjármagnsgjöld að fjárhæð 986 milljónir króna á 1F25.
  • Stjórnunarkostnaður nam 7,8 milljörðum króna á fyrsta ársfjórðungi 2026, en nam 7,4 milljörðum króna á 1F25.
  • Kostnaðarhlutfall bankans var 38,5% á fyrsta ársfjórðungi 2026, samanborið við kostnaðarhlutfallið 47,6% á 1F25.
  • Virðisrýrnun fjáreigna jókst og var neikvæð um 1.219 milljónir króna á fyrsta ársfjórðungi 2026 samanborið við virðisrýrnun sem nam 3 milljónum króna á 1F25. Áhættukostnaður útlána (e. cost of risk) var 35 punktar á ársgrundvelli á fyrsta ársfjórðungi 2026 samanborið við 0 punkta á 1F25.
  • Útlán til viðskiptavina jukust um 34,1 milljarð króna á fyrsta ársfjórðungi 2026 frá fjórða ársfjórðungi 2025 og voru 1.401 milljarð króna í lok fyrsta ársfjórðungs 2026.
  • Innlán frá viðskiptavinum jukust um 4,6% á fyrsta fjórðungi 2026 og námu 1.013 milljörðum króna í lok 1F26.
  • Eigið fé nam 212,7 milljörðum króna í lok fyrsta ársfjórðungs 2027, samanborið við 225,4 milljarða króna í lok árs 2024.
  • Eiginfjárhlutfall var 22,5% í lok fyrsta ársfjórðungs 2026, að meðtöldum hagnaði á 1F26, samanborið við 24,0% í lok árs 2025. Samsvarandi eiginfjárhlutfall almenns þáttar 1 (CET1) var 18,6%  í lok fyrsta ársfjórðungs 2026 að meðtöldum hagnaði á 1F26, samanborið við 20,1% í lok árs 2025. Eiginfjárhlutfall almenns þáttar 1 var 363 punktum yfir kröfum eftirlitsaðila í lok fyrsta ársfjórðungs 2026, og hærra en fjárhagslegt markmið bankans sem er að vera með 100-300 punkta eiginfjár svigrúm umfram kröfur eftirlitsaðila.
  • Heildarútgreiðslugeta nemur 29,2 milljörðum króna og tekur mið af hagnaði fyrsta ársfjórðungs 2026 auk ólokinna endurkaupa á birtingardegi.
  • Lágmarkskrafa um eiginfjárgrunn og hæfar skuldbindingar (MREL) er 18,8% af áhættugrunni, til viðbótar við samanlagða kröfu um eiginfjárauka. Lágmarkskrafa um eiginfjárgrunn og hæfar skuldbindingar (e. MREL) bankans sem % af áhættuvegnum eignum var 28,5% að meðtöldum samanlögðum varúðarauka samstæðunnar þann 31. mars 2026. Í lok fyrsta fjórðungs 2026 var MREL hlutfall bankans 40,3%.
  1F264F253F252F251F25
REKSTURHagnaður tímabils, m.kr.7.4565.9476.9017.1925.209
 Arðsemi eigin fjár13,6%10,5%12,2%13,0%9,4%
 Vaxtamunur (af heildareignum)3,9%2,9%3,1%3,3%3,2%
 Kostnaðarhlutfall138,5%43,5%38,2%41,0%47,6%
 Áhættukostnaður útlána20,35%0,32%(0,00%)(0,12%)0,00%
  




  31.3.2631.12.2530.9.2530.6.2531.3.25
EFNAHAGURÚtlán til viðskiptavina, m.kr.1.401.2121.367.1061.333.2341.331.2881.298.849

Eignir samtals, m.kr.1.786.6971.728.1471.734.0561.696.0341.667.429

Áhættuvegnar eignir, m.kr.1.049.4351.033.7881.084.5271.084.4921.061.903

Innlán frá viðskiptavinum, m.kr.1.013.431968.6951.008.919966.075936.779

Útlán til viðskiptavina / innlán frá viðskiptavinum138%141%132%138%139%

Hlutfall lána með laskað lánshæfi32,0%1,5%1,6%1,6%1,8%


     
       
LAUSAFÉFjármögnunarhlutfall (NSFR), allir gjaldmiðlar123%127%129%125%128%

Lausafjárþekjuhlutfall (LCR), allir gjaldmiðlar177%203%207%185%202%







       
EIGIÐ FÉEigið fé samtals, m.kr.212.718225.359226.974224.725217.894

Eiginfjárhlutfall almenns þáttar 1418,6%20,1%18,9%18,5%18,6%

Eiginfjárhlutfall þáttar 1420,2%21,7%19,8%19,4%19,5%

Eiginfjárhlutfall422,5%24,0%21,9%21,5%21,6%

Vogunarhlutfall411,5%12,5%11,9%12,0%12,1%

MREL hlutfall540,3%44,0%36,8%36,7%37,8%

1. Kostnaðarhlutfall fyrir 4F25 undanskilur launakostnað að fjárhæð 804 milljónir króna vegna snemmbúinna starfsloka og tekjur að fjárhæð 237 milljónir króna innan hreinna vaxtatekna (550 milljónir króna vegna bakfærslu á skuldbindingu sem var gjaldfærð í 3F25 vegna lögfræðilegra mála og gjaldfærslu að fjárhæð 313 milljónir króna vegna leiðréttingar frá fyrri árum). Kostnaðarhlutfall á þriðja ársfjórðungi undanskilur 550 milljón króna varúðarfærslu vegna dómsmáls á meðal hreinna vaxtatekna.
2. Neikvæður áhættukostnaður merkir að það hafi verið nettó tekjufærsla úr virðisrýrnunarsjóði.
3. Stig 3, útlán til viðskiptavina, vergt bókfært virði.
4. Að meðtöldum 1F26 hagnaði fyrir 31.3.26 og 3F25 hagnaði fyrir 30.9.25.
5. MREL hlutfallið er birt að meðtöldu almennu eiginfé þáttar 1 sem er haldið til að mæta samanlagðri kröfu um eiginfjárauka.

Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri Íslandsbanka

Hagnaður af rekstri Íslandsbanka nam 7,5 milljörðum króna á fyrsta ársfjórðungi og arðsemi eigin fjár á ársgrundvelli var 13,6%, sem er í báðum tilvikum yfir spám greinenda fyrir fjórðunginn. Aukning í vaxtatekjum, sem voru rúmum 11% yfir spám greinenda, skýrir að stórum hluta aukinn hagnað samanborið við fyrsta ársfjórðung síðasta árs. Afkoma af kjarnarekstri sýnir að undirstöðurnar í rekstri bankans eru sterkar. Óvissa í alþjóðlegu umhverfi og sveiflur á mörkuðum erlendis og minni umsvif á markaði hér á landi höfðu áhrif á þóknanatekjur á fjórðungnum, sem þó voru hærri en á fyrsta ársfjórðungi árið 2025.

Afkoma Íslandsbanka endurspeglar traustan rekstur bankans þrátt fyrir krefjandi ytra umhverfi. Ný vildarþjónusta Íslandsbanka hefur slegið í gegn og skráðu 38 þúsund viðskiptavinir sig í þjónustuna á fyrstu þremur vikum hennar. Góð viðbrögð viðskiptavina staðfesta að einfaldari, persónulegri og gagnsæ þjónusta skiptir máli og við höldum áfram að þróa þjónustuna með það fyrir augum að gera hana enn betri. Staða Íslandsbanka á markaði fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki hefur verið afar sterk og nýverið hófum við að bjóða upp á færsluhirðingu sem hluta vöruframboðs okkar og bætum því enn frekar við þjónustu okkar á þeim markaði.
Áhrifa óvissu í alþjóðlegu umhverfi hefur orðið vart hér á landi líkt og víða annars staðar. Verðbólga hefur verið þrálát og samkvæmt spá greiningar Íslandsbanka er ekki gert ráð fyrir því að stýrivextir lækki fyrr en í fyrsta lagi í lok árs. Við erum í nánu sambandi við okkar viðskiptavini og fylgjumst með áhrifum ytra umhverfis á umsvif og eignagæði.
Með stofnun þróunarfélags um nýtingu gervigreindar tókum við eitt skrefið enn að því markmiði að innleiða gervigreind á enn markvissari hátt inn í daglegan rekstur bankans. Ætlunin er að þróa í félaginu nýjar hugbúnaðarlausnir á kvikan og skapandi hátt og verður áhugavert að fylgjast með þeim anga starfseminnar ná flugi. Innan bankans verður áfram lögð áhersla á að valdefla starfsfólk, þjálfa og kenna því að nýta gervigreindina í störfum þess. Skipulagsbreytingarnar sem komu til framkvæmda nýverið eru liður í því að auka skilvirkni, stytta boðleiðir og einfalda ákvarðanatöku innan bankans. Íslandsbanki hefur unnið markvisst að því að greina áhrif nýjustu tæknibreytinga á starfsemi bankans og ætlar sér að vera leiðandi í því að nýta nýja tækni og efla með henni enn frekar þjónustu okkar við viðskiptavini. Breytingarnar voru liður í því að gera bankann betur í stakk búinn til að móta framtíð bankaþjónustu.

Afkomuefni

Ítarlegri upplýsingar um rekstur og afkomu Íslandsbanka má finna í enskri útgáfu fréttatilkynningarinnar. Íslenska útgáfan veitir aðeins yfirlit yfir helstu þætti uppgjörsins, fjárfestafund og fjárhagsdagatal. Sé misræmi á milli tilkynninga á íslensku annars vegar og ensku hins vegar, gildir enska útgáfan.

Fyrirvari

Fréttatilkynning þessi gæti vísað til spár um framtíðarhorfur sem er háð áhættu- og óvissuþáttum og getur þýtt að raunverulegur árangur verði umtalsvert frábrugðinn því sem spáð er í þessari fréttatilkynningu. Íslandsbanki hf. hefur ekki skyldu til að, og mun ekki, uppfæra þessar spár um framtíðarhorfur félagsins til að endurspegla atburði og aðstæður sem eiga sér stað eftir útgáfu þessarar fréttatilkynningar. Það er á ábyrgð fjárfestis að reiða sig ekki á spár um framtíðarhorfur sem eru settar fram í þessari fréttatilkynningu þar sem þær eiga eingöngu við á þeim tíma sem hún er gefin út. Spár um framtíðarhorfur gefa ekki áreiðanlega vísbendingu um framtíðarárangur og eru allar yfirlýsingar um framtíðarhorfur félagsins fullgildar í heild sinni með tilliti til þessa fyrirvara.


FJÁRFESTATENGSL
Afkomufundur í vefstreymi föstudaginn 8. maí 2026
Íslandsbanki mun halda afkomufund í vefstreymi fyrir fjárfesta og markaðsaðila, föstudaginn 8. maí 2026 kl. 8.30. Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri og Ellert Hlöðversson, fjármálastjóri munu kynna afkomu og helstu atriði í rekstri bankans á fyrsta ársfjórðungi 2026. Fundurinn fer fram á ensku.
Fundurinn verður aðgengilegur í gegnum hlekk á vefsvæði fjárfestatengsla á vef bankans. Upptaka verður aðgengileg á sama stað að honum loknum. Þátttaka, og möguleikinn á að senda inn skriflegar spurningar, fer fram á þessari síðu. Markaðsaðilar geta einnig hringt inn á fundinn og lagt fram spurningar munnlega með því að skrá sig á þessari síðu. Að skráningu lokinni verður símanúmer og auðkenni fyrir fundinn afhent. Allar upplýsingar um fundinn má finna hér.
Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Íslandsbanka: ir@islandsbanki.is.

Fjárhagsdagatal
Stefnt er að birtingu árshluta- og ársuppgjörs á eftirfarandi dagsetningum:

Árshlutauppgjör annars ársfjórðungs 2026 – 29. júlí 2026

Árshlutauppgjör þriðja ársfjórðungs 2026 – 29. október 2026

Frekari upplýsingar um fjárhagsdagatal Íslandsbanka eru aðgengilegar á vef bankans. Dagsetningar eru birtar með fyrirvara um breytingar.


Fjárfestaefni
Allt fjárfestaefni verður birt á vefsvæði fjárfestatengsla þar sem ítarlegri upplýsingar um fjárhagsdagatal og þögul tímabil eru einnig aðgengilegar.

Þessi tilkynning er birt af Íslandsbanka hf. og inniheldur upplýsingar sem töldust eða kunna að hafa talist innherjaupplýsingar í skilningi 7. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og Ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik (MAR), sbr. lög nr. 60/2021, um aðgerðir gegn markaðssvikum, varðandi afkomu á fyrsta ársfjórðungi 2026 sem lýst er að ofan. Tilkynning þessi er gerð af Ellerti Hlöðverssyni, fjármálastjóra Íslandsbanka hf., í samræmi við upplýsingaskyldu bankans samkvæmt MAR og 2. gr. framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EU) 2016/1055.