Torsdag 29 Oktober | 22:28:51 Europe / Stockholm
Est. tid*
2026-10-29 18:10 Kvartalsrapport 2026-Q3
2026-07-29 - Kvartalsrapport 2026-Q2
2026-05-07 - Kvartalsrapport 2026-Q1
2026-03-20 - X-dag ordinarie utdelning ISB 7.28 ISK
2026-02-12 - Bokslutskommuniké 2025
2025-10-30 - Kvartalsrapport 2025-Q3
2025-07-31 - Kvartalsrapport 2025-Q2
2025-05-08 - Kvartalsrapport 2025-Q1
2025-04-01 - X-dag ordinarie utdelning ISB 6.46 ISK
2025-02-13 - Bokslutskommuniké 2024
2024-10-23 - Kvartalsrapport 2024-Q3
2024-07-25 - Kvartalsrapport 2024-Q2
2024-05-02 - Kvartalsrapport 2024-Q1
2024-03-22 - X-dag ordinarie utdelning ISB 6.26 ISK
2024-02-09 - Bokslutskommuniké 2023
2023-10-26 - Kvartalsrapport 2023-Q3
2023-07-27 - Kvartalsrapport 2023-Q2
2023-05-04 - Kvartalsrapport 2023-Q1
2023-03-17 - X-dag ordinarie utdelning ISB 6.15 ISK
2023-02-09 - Bokslutskommuniké 2022
2022-10-27 - Kvartalsrapport 2022-Q3
2022-07-28 - Kvartalsrapport 2022-Q2
2022-05-05 - Kvartalsrapport 2022-Q1
2022-03-18 - X-dag ordinarie utdelning ISB 5.95 ISK
2022-03-17 - Årsstämma
2022-02-10 - Bokslutskommuniké 2021
2021-10-28 - Kvartalsrapport 2021-Q3
2021-07-28 - Kvartalsrapport 2021-Q2
2021-05-05 - Kvartalsrapport 2021-Q1
LandIsland
ListaLarge Cap Iceland
SektorFinans
IndustriStorbank
Íslandsbanki är verksamma inom finanssektorn. Idag erbjuder banken ett brett utbud av finansiella tjänster, huvudsakligen inriktat mot små- och medelstora företagskunder. Tjänsteutbudet är brett och inkluderar exempelvis kapitalförvaltning samt lånefinansiering. Utöver huvudverksamheten erbjuds diverse kringtjänster. Bolaget bedriver verksamhet runtom den isländska hemmamarknaden.

All ägardata du vill ha finns i Holdings!

Íslandsbanki hf.: Afkoma á þriðja ársfjórðungi 2026

2026-10-29 16:45:00

Hagnaður af rekstri nam 7,3 milljörðum króna á þriðja ársfjórðungi 2026. Arðsemi eigin fjár á þriðja ársfjórðungi var 13,6% á ársgrundvelli.

HELSTU ATRIÐI Í AFKOMU ÍSLANDSBANKA
Helstu atriði í fjárhagslegri afkomu þriðja ársfjórðungs 2026 (3F26)

  • Hagnaður af rekstri nam 7,3 milljörðum króna á þriðja ársfjórðungi 2026 (3F25: 6,9 milljarðar króna). Arðsemi eigin fjár á þriðja ársfjórðungi var 13,6% á ársgrundvelli (3F25: 12,2%).
  • Hreinar vaxtatekjur námu 15,8 milljörðum króna á 3F26 og hækkuðu um 2,6 milljarða króna samanborið við 3F25.
  • Vaxtamunur var 3,5% á 3F26 samanborið við 3,1% á 3F25. 
  • Hreinar þóknanatekjur á 3F26 voru 3,3 milljarðar króna, samanborið við þóknanatekjur á 3F25 sem námu 3,2 milljörðum króna.
  • Hrein fjármagnsgjöld voru 223 milljónir króna á 3F26, samanborið við fjármagnsgjöld að fjárhæð 353 milljónir króna á 3F25.
  • Stjórnunarkostnaður nam 7,3 milljarði króna á 3F26, en hann nam 6,5 milljörðum króna á 3F25.
  • Kostnaðarhlutfall bankans var 38,4% á 3F26 samanborið við kostnaðarhlutfallið 38,2% á 3F25.
  • Virðisrýrnun fjáreigna nam um 1.021 milljón króna á 3F26 samanborið við jákvæða virðisbreytingu að fjárhæð 7 milljónir króna á 3F25. Áhættukostnaður útlána (e. cost of risk) var 29 punktar á ársgrundvelli á 3F26 samanborið við 0 punkta á 3F25 og 25 punkta á 9M26, samanborið við -4 punkta á 9M25.
  • Útlán til viðskiptavina jukust um 15,0 milljarða króna á 3F26 og námu 1.431 milljörðum króna í lok 3F26.
  • Innlán frá viðskiptavinum jukust um 3,9% á 3F26 og námu 1.078 milljörðum króna í lok 3F26.
  • Eigið fé nam 215,4 milljarði króna í lok 3F26, samanborið við 225,4 milljörðum króna í lok árs 2025.
  • Eiginfjárhlutfall var 21,8% í lok 3F26, að meðtöldum hagnaði 3F26, samanborið við 24,0% í lok árs 2025. Samsvarandi eiginfjárhlutfall almenns þáttar 1 (CET1) var 18,4% í lok 3F26, að meðtöldum helmingi hagnaðar 3F26 í samræmi við arðgreiðslustefnu samstæðunnar, samanborið við 20,1% í lok árs 2025. Eiginfjárhlutfall almenns þáttar 1 var 315 punktum yfir kröfum eftirlitsaðila í lok 3F26, og hærra en fjárhagslegt markmið bankans sem er að hafa 100-300 punkta eiginfjár svigrúm umfram kröfur eftirlitsaðila.
  • Heildarútgreiðslugeta nemur 22,3 milljarði króna og tekur mið af óloknum endurkaupum á birtingardegi.
  • Lágmarkskrafa um eiginfjárgrunn og hæfar skuldbindingar (MREL) er 18,8% af áhættugrunni, til viðbótar við samanlagða kröfu um eiginfjárauka. MREL hlutfall bankans sem % af áhættuvegnum eignum var 28,5% að meðtöldum samanlögðum varúðarauka samstæðunnar þann 30. september 2026. Í lok 3F26 var MREL hlutfall bankans 40,4% að meðtöldum hagnaði 3F26. Gert er ráð fyrir að ný skilaáætlun fyrir bankann verði samþykkt í október með hækkun á MREL-kröfu í 19,6%, í samræmi við nýjustu niðurstöður SREP-mats bankans.
  • Íslandsbanki keypti 25,9 milljón eigin bréf fyrir um 3,7 milljarða króna á 3F26.
  3F262F261F264F253F25
REKSTURHagnaður tímabils, m.kr.7,2697,0697,4565,9476,901
 Arðsemi eigin fjár13.6%13.3%13.6%10.5%12.2%
 Vaxtamunur (af heildareignum)3.5%3.4%3.9%2.9%3.1%
 Kostnaðarhlutfall138.4%43.1%38.5%43.5%38.2%
 Áhættukostnaður útlána20.29%0.13%0.35%0.32%(0.00%)
  




  30.9.2630.6.2631.3.2631.12.2530.9.25
EFNAHAGURÚtlán til viðskiptavina, m.kr.1,431,0381,416,0481,401,2121,367,1061,333,234

Eignir samtals, m.kr.1,819,4631,788,3851,786,6971,728,1471,734,056

Áhættuvegnar eignir, m.kr.1,051,8741,043,7131,049,4351,033,7881,084,527

Innlán frá viðskiptavinum, m.kr.1,078,2591,038,2061,013,431968,6951,008,919

Útlán til viðskiptavina / innlán frá viðskiptavinum133%136%138%141%132%

Hlutfall lána með laskað lánshæfi32.4%2.6%2.0%1.5%1.6%


     
       
LAUSAFÉFjármögnunarhlutfall (NSFR), allir gjaldmiðlar122%126%123%127%129%

Lausafjárþekjuhlutfall (LCR), allir gjaldmiðlar179%188%177%203%207%







       
EIGIÐ FÉEigið fé samtals, m.kr.215,393211,095212,718225,359226,974

Eiginfjárhlutfall almenns þáttar 1418.4%19.1%18.6%20.1%18.9%

Eiginfjárhlutfall þáttar 1419.4%20.7%20.2%21.7%19.8%

Eiginfjárhlutfall421.8%23.0%22.5%24.0%21.9%

Vogunarhlutfall410.9%11.7%11.5%12.5%11.9%

MREL hlutfall540.4%43.9%40.3%44.0%36.8%

1. Kostnaðarhlutfall fyrir 4F25 undanskilur launakostnað að fjárhæð 804 milljónir króna vegna snemmbúinna starfsloka og tekjur að fjárhæð 237 milljónir króna innan hreinna vaxtatekna (550 milljónir króna vegna bakfærslu á skuldbindingu sem var gjaldfærð í 3F25 vegna lögfræðilegra mála og gjaldfærslu að fjárhæð 313 milljónir króna vegna leiðréttingar frá fyrri árum). Kostnaðarhlutfall á þriðja ársfjórðungi 2025 undanskilur 550 milljón króna varúðarfærslu vegna dómsmáls á meðal hreinna vaxtatekna.
2. Neikvæður áhættukostnaður merkir að það hafi verið nettó tekjufærsla úr virðisrýrnunarsjóði.
3. Stig 3, útlán til viðskiptavina, vergt bókfært virði.
4. Að meðtöldum 3F26 hagnaði fyrir 30.9.26, 1F26 hagnaði fyrir 31.3.26 og 3F25 hagnaði fyrir 30.9.25.
5. MREL hlutfallið er birt að meðtöldu almennu eiginfé þáttar 1 sem er haldið til að mæta samanlagðri kröfu um eiginfjárauka.

Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri Íslandsbanka:

Rekstur Íslandsbanka á þriðja ársfjórðungi 2026 var traustur og umsvif góð í öllum viðskiptaeiningum bankans. Hagnaður af rekstri bankans nam 7,3 milljörðum króna á fjórðungnum, samanborið við 6,9 milljarða króna á sama fjórðungi í fyrra. Hagnaður fyrstu níu mánaða ársins nam 21,8 milljörðum króna, samanborið við 19,3 milljarða króna á sama tímabili 2025. Vaxtamunur var 3,5% á fjórðungnum. Arðsemi eigin fjár á fjórðungnum var 13,6% á ársgrundvelli og kostnaðarhlutfallið var 38,4%.

Rekstur bankans hefur áfram þróast vel í samræmi við stefnu hans. Vildarþjónusta bankans heldur áfram að sækja í sig veðrið en nú eru yfir 68.000 viðskiptavinir skráðir í þjónustuna og 17.900 vildarreikningar hafa verið stofnaðir. Við héldum áfram að þróa Íslandsbanka appið og kynntum til leiks gervigreindarlausn sem gerir notendum kleift að fá samantekt á útgjöldum sínum. Þar að auki urðu sjóðir Vanguard aðgengilegir í appinu í september, en bankinn fagnar 28 ára samstarfsafmæli við Vanguard um þessar mundir. Fyrirtækjasvið bankans hélt áfram að byggja á sterkri stöðu með fjölda nýrra viðskiptavina víðsvegar af landinu ásamt því að færsluhirðing bankans, sem var kynnt fyrr á árinu, heldur áfram að vaxa. Fyrirtækjum sem nýta þjónustuna fer fjölgandi en við finnum fyrir miklum áhuga frá viðskiptavinum sem myndar traustan grunn fyrir áframhaldandi vöxt þjónustunnar.

Í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2027 er lagt til að bankaskattur hækki úr 0,145% í 0,254%, sem jafngildir um 75% hækkun. Því hefur verið haldið fram að lækkun bankaskattsins árið 2020 hafi ekki skilað sér til viðskiptavina, en gögnin benda til annars. Síðan þá hefur vaxtamunur gagnvart heimilum dregist saman þrátt fyrir mikla hækkun stýrivaxta og þjónustugjöld hafa lækkað að raunvirði. Sérstakir skattar á íslenska banka eru nú þegar meira en fimmfalt hærri en að meðaltali í Vestur-Evrópu. Það veikir samkeppnisstöðu íslenska fjármálakerfisins nú þegar og fyrirhuguð hækkun myndi draga enn frekar úr samkeppnishæfni þess.

Á fjórðungnum veitti Seðlabanki Íslands bankanum heimild til endurkaupa eigin hluta að markaðsvirði fyrir allt að 10 milljarða króna og til samsvarandi lækkunar hlutafjár. Eiginfjárstaða bankans er sterk og er eiginfjárhlutfall umfram kröfur eftirlitsaðila, sem veitir svigrúm til að styðja við áframhaldandi vöxt og skila umfram eigin fé til hluthafa.

Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka, sem fram fór í ágúst, heldur áfram að vera stærsti góðgerðarviðburður landsins og í ár söfnuðust meira en 307 milljónir króna. Viðburðurinn er einn af hápunktum ársins í starfsemi bankans og í ár tóku yfir 16 þúsund manns þátt og styrktu góðgerðarfélög og samtök um land allt.

Við horfum með eftirvæntingu fram á veginn og sjáum fjölda tækifæra til að styðja enn betur við viðskiptavini okkar með nýjum og endurbættum lausnum, aukinni nýtingu tækni og áframhaldandi fjárfestingu í þjónustu okkar. Sterk eiginfjárstaða veitir bankanum svigrúm til að sækja vaxtartækifæri, taka þátt í mikilvægum verkefnum og skapa langtímavirði fyrir viðskiptavini og hluthafa. Við leggjum áfram áherslu á að þróa þjónustu okkar í takt við síbreytilegar þarfir viðskiptavina og veita framúrskarandi þjónustu.

Afkomuefni

Ítarlegri upplýsingar um rekstur og afkomu Íslandsbanka má finna í enskri útgáfu fréttatilkynningarinnar. Íslenska útgáfan veitir aðeins yfirlit yfir helstu þætti uppgjörsins, fjárfestafund og fjárhagsdagatal. Sé misræmi á milli tilkynninga á íslensku annars vegar og ensku hins vegar, gildir enska útgáfan.


Fyrirvari
Fréttatilkynning þessi gæti vísað til spár um framtíðarhorfur sem er háð áhættu- og óvissuþáttum og getur þýtt að raunverulegur árangur verði umtalsvert frábrugðinn því sem spáð er í þessari fréttatilkynningu. Íslandsbanki hf. hefur ekki skyldu til að, og mun ekki, uppfæra þessar spár um framtíðarhorfur félagsins til að endurspegla atburði og aðstæður sem eiga sér stað eftir útgáfu þessarar fréttatilkynningar. Það er á ábyrgð fjárfestis að reiða sig ekki á spár um framtíðarhorfur sem eru settar fram í þessari fréttatilkynningu þar sem þær eiga eingöngu við á þeim tíma sem hún er gefin út. Spár um framtíðarhorfur gefa ekki áreiðanlega vísbendingu um framtíðarárangur og eru allar yfirlýsingar um framtíðarhorfur félagsins fullgildar í heild sinni með tilliti til þessa fyrirvara.

FJÁRFESTATENGSL
Afkomufundur í vefstreymi föstudaginn 30. október 2026

Íslandsbanki mun halda afkomufund í vefstreymi fyrir fjárfesta og markaðsaðila, föstudaginn 30. október 2026 kl. 8.30. Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri og Ellert Hlöðversson, fjármálastjóri munu kynna afkomu og helstu atriði í rekstri bankans á þriðja ársfjórðungi 2026. Fundurinn fer fram á ensku.

Fundurinn verður aðgengilegur í gegnum hlekk á vefsvæði fjárfestatengsla á vef bankans. Upptaka verður aðgengileg á sama stað að honum loknum. Þátttaka, og möguleikinn á að senda inn skriflegar spurningar, fer fram á þessari síðu. Markaðsaðilar geta einnig hringt inn á fundinn og lagt fram spurningar munnlega með því að skrá sig á þessari síðu. Að skráningu lokinni verður símanúmer og auðkenni fyrir fundinn afhent.

Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Íslandsbanka: ir@islandsbanki.is.

Fjárhagsdagatal
Fjárhagsdagatal fyrir árið 2027 verður birt fyrir árslok 2026.

Frekari upplýsingar um fjárhagsdagatal Íslandsbanka eru aðgengilegar á vef bankans. Dagsetningar eru birtar með fyrirvara um breytingar.

Fjárfestaefni
Allt fjárfestaefni verður birt á vefsvæði fjárfestatengsla þar sem ítarlegri upplýsingar um fjárhagsdagatal og þögul tímabil eru einnig aðgengilegar.

Þessi tilkynning er birt af Íslandsbanka hf. og inniheldur upplýsingar sem töldust eða kunna að hafa talist innherjaupplýsingar í skilningi 7. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og Ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik (MAR), sbr. lög nr. 60/2021, um aðgerðir gegn markaðssvikum, varðandi afkomu á þriðja ársfjórðungi 2026 sem lýst er að ofan. Tilkynning þessi er gerð af Ellerti Hlöðverssyni, fjármálastjóra Íslandsbanka hf., í samræmi við upplýsingaskyldu bankans samkvæmt MAR og 2. gr. framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EU) 2016/1055.