Bifogade filer
Prenumeration
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Large Cap Iceland |
Sektor | Finans |
Industri | Storbank |
Stjórn Íslandsbanka ákvað á fundi sínum í dag að óska eftir því við stjórn Kviku banka hf. að hafnar verði samrunaviðræður á milli félaganna tveggja. Stjórnarformanni og bankastjóra Kviku banka hefur verið sent bréf þess efnis.
Íslandsbanki telur að sameining skapi fjölmörg tækifæri fyrir sameinað banka, hluthafa hans, viðskiptavini og fjármálakerfið í heild. Aukin verðmætasköpun getur meðal annars náðst með aukinni stærðarhagkvæmni sem geti skilað sér til neytenda, fjölbreyttari starfsemi sameinaðs banka, lægri fjármögnunarkostnaði á alþjóðlegum fjármálamörkuðum og umtalsverðum samlegðaráhrifum á tekjur. Þá gerir Íslandsbanki ráð fyrir að aukið markaðsvirði sameinaðs banka muni laða að fjölbreyttari hóp hluthafa, bæði innanlands og utan, sem verði til hagsbóta fyrir núverandi hluthafa bankans og fjármálamarkaðinn í heild.
Íslandsbanki telur að viðræður um sameiningu eigi að byggja á markaðsvirði beggja félaga og er Íslandsbanki reiðubúinn að bjóða 10% ofan á markaðsvirði Kviku við útreikning á skiptihlutföllum. Enn fremur er bankinn tilbúinn til að ræða fyrirkomulag sem gefi hluthöfum Kviku kost á að fá greitt með hlutabréfum og reiðufé.
Samþykki Kvika þessa tillögu Íslandsbanka er gert ráð fyrir að forsvarsmenn félaganna hittist til að ræða næstu skref, sem yrðu háð nauðsynlegum leyfum eftirlitsaðila. Þar sem bæði félögin eru eftirlitsskyld og skráð á hlutabréfamarkaði og lúta upplýsingaskyldu, gerir Íslandsbanki ráð fyrir að þörf á áreiðanleikakönnun verði takmörkuð. Jafnframt vísar Íslandsbanki til nýlegrar útboðslýsingar bankans sem unnin var í kjölfar slíkrar könnunar.
Eins og komið hefur fram opinberlega telur Íslandsbanki að frekari samþætting verði fjármálakerfinu á Íslandi til hagsbóta. Þá hefur Íslandsbanki lýst yfir markmiðum sínum um áframhaldandi vöxt og vilja til að taka virkan þátt í þróun íslensks fjármálamarkaðar. Með það í huga telur Íslandsbanki að sameining Íslandsbanka og Kviku geti skapað veruleg verðmæti fyrir bæði félög, viðskiptavini og aðra hagsmunaaðila.
Íslandsbanki óskar eftir svari við bréfinu innan tveggja vikna en er reiðubúinn til að lengja þann frest, ef Kvika óskar þess.
Þessi tilkynning er birt af Íslandsbanka hf. og inniheldur upplýsingar sem töldust eða kunna að hafa talist innherjaupplýsingar í skilningi 7. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og Ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik (MAR), sbr. lög nr. 60/2021, um aðgerðir gegn markaðssvikum, varðandi bréfið sem lýst er að ofan. Tilkynning þessi er gerð af Ellerti Hlöðverssyni, fjármálastjóra Íslandsbanka hf., í samræmi við upplýsingaskyldu bankans samkvæmt MAR og 2. gr. framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EU) 2016/1055.