Bifogade filer
Prenumeration
Beskrivning
| Land | Island |
|---|---|
| Lista | Large Cap Iceland |
| Sektor | Finans |
| Industri | Storbank |
Vem äger bolaget?
All ägardata du vill ha finns i Holdings!
Á aðalfundi Íslandsbanka hf. þann 19. mars 2026 var samþykkt tillaga stjórnar bankans um að lækka hlutafé bankans. Fundurinn samþykkti að hlutafé bankans yrði lækkað um 636.476.885 kr. að nafnverði, eða sem nemur 127.295.377 hlutum, úr 9.402.353.850 kr., í 8.765.876.965 kr. að nafnverði og fylgir eitt atkvæði hverri krónu nafnverðs hlutafjár.
Þann 25. mars sl. tilkynnti bankinn að beiðni hafi verið send til Nasdaq um lækkun hlutafjárins og að hún myndi koma til framkvæmdar föstudaginn 27. mars 2026.
Framangreind lækkun hefur nú verið framkvæmd og tilkynnist hér með að heildarfjöldi hluta í Íslandsbanka hf. er í dag, 27. mars 2026, 1.753.175.393. Eftir lækkunina eru 21.861.379 eigin hlutir í eigu bankans.
Að öðru leyti er vísað til fyrri tilkynninga bankans sem birtust í fréttakerfi kauphallarinnar, annars vegar þann 19. mars 2026 um niðurstöður aðalfundar bankans og hins vegar þann 25. mars 2026 um lækkun hlutafjár.