Bifogade filer
Prenumeration
Beskrivning
| Land | Island |
|---|---|
| Lista | Large Cap Iceland |
| Sektor | Finans |
| Industri | Storbank |
Vem äger bolaget?
All ägardata du vill ha finns i Holdings!
Íslandsbanki („bankinn“) lauk í dag sölu á grænum almennum skuldabréfum (e. senior preferred) að fjárhæð 600 milljónir norskra króna og 1,4 milljarðar sænskra króna til 3 ára og verða útgáfurnar gefnar út undir EMTN útgáfuramma bankans. Skuldabréfin voru seld á kjörum sem jafngilda 78bp álagi á þriggja mánaða millibankavexti í norskum krónum og 80bp álagi á þriggja mánaða millibankavexti í sænskum krónum.
Andvirði útgáfunnar mun verða notað til lánveitinga sem uppfylla skilyrði sem sett eru fram í sjálfbærum fjármögnunarramma bankans. Frekari upplýsingar má nálgast á vefsíðu bankans: https://www.islandsbanki.is/is/vara/bankinn/fjarmognun-bankans.
Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Euronext Dublin þann 11. júní 2026.
Vísað er til tilkynningar bankans fyrr í dag um endurkaupatilboð vegna tiltekinna útistandandi skuldabréfa í norskum og sænskum krónum. Niðurstöður endurkaupatilboðsins verða tilkynntar sérstaklega.
Umsjónaraðilar (e. Joint Lead Managers) útgáfunnar voru Danske Bank, DNB Carnegie og SEB.