Prenumeration
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Large Cap Iceland |
Sektor | Finans |
Industri | Storbank |
Í dag samþykkti stjórn Íslandsbanka að hefja samrunaviðræður við Kviku banka hf. (Kvika) um mögulegan samruna félaganna tveggja á grundvelli beiðni stjórnar Kviku um slíkar viðræður sem dagsett var 2. febrúar 2023.
Stjórn bankans telur að í samruna félaganna geti falist sóknar- og hagræðingartækifæri og að viðskiptavinir sameinaðs félags muni geta notið þess í breiðara vöruframboði, aukinni þjónustu og lægri kostnaði. Með sameiningu myndi efnahagsreikningur Íslandsbanka stækka um tæplega 20% og tryggingarekstur Kviku auka fjölbreytni í tekjugrunni bankans. Telur stjórn bankans ávinning geta falist í samrunanum fyrir bæði hluthafa og viðskiptavini beggja félaga.
Bankarnir tveir starfa á mikilvægum mörkuðum og leggur Íslandsbanki áherslu á að þeir viðhaldi samkeppnislegu sjálfstæði sínu á meðan ferlinu stendur. Leggur bankinn jafnframt áherslu á opin og hreinskiptin samskipti við viðeigandi eftirlitsaðila í ferlinu.
Samruni félaganna er háður samþykki hluthafafundar beggja félaganna og viðeigandi eftirlitsaðila.
Nánari upplýsingar veita:
Fjárfestatengsl – Bjarney Anna Bjarnadóttir, ir@islandsbanki.is
Samskiptastjóri – Edda Hermannsdóttir, pr@islandsbanki.is
Þessi tilkynning er gerð af Jóni Guðna Ómarssyni, fjármálastjóra Íslandsbanka hf., í samræmi við upplýsingaskyldu bankans samkvæmt lögum nr. 60/2021, um aðgerðir gegn markaðssvikum, sbr. reglugerð Evrópuþingsins og Ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik (MAR) og framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EU) 2016/1055.
Póstlisti Íslandsbanka
Ef þú vilt gerast áskrifandi að kauphallarfréttum Íslandsbanka þá vinsamlegast skráðu þig hér: https://www.islandsbanki.is/is/grein/postlisti_ir
Um Íslandsbanka
Íslandsbanki er alhliða banki sem leggur áherslu á að koma til móts við þarfir viðskiptavina sinna og á sér langa sögu sem nær aftur til ársins 1875. Bankinn leggur áherslu á traustan rekstur og að hafa jákvæð áhrif í samfélaginu en hlutverk bankans er að vera hreyfiafl til góðra verka svo viðskiptavinir okkar nái árangri. Með framtíðarsýnina að vera #1 í þjónustu að leiðarljósi vinna þrjár viðskiptaeiningar þétt saman til þess að viðhalda góðum viðskiptasamböndum. Markaðshlutdeild bankans er sterk og rekur bankinn skilvirkasta útibúanetið á landinu og styður um leið við viðskiptavini sína á stafrænni vegferð þeirra. Umhverfið sem bankinn starfar í er eftirsóknarvert og er Íslandsbanki vel í stakk búinn að takast á við tækifærin framundan með öflugar tæknilegar stoðir og sterkan efnahagsreikning. Íslandsbanki er með lánshæfismatið BBB/A-2 frá S&P Global Ratings. Hlutabréf bankans eru skráð á Aðalmarkað Nasdaq Iceland.
Fyrirvari
Framangreind fréttatilkynning gæti vísað til spár um framtíðarhorfur sem er háð áhættu- og óvissuþáttum og getur þýtt að raunverulegur árangur verði umtalsvert frábrugðinn því sem spáð er í þessari fréttatilkynningu. Íslandsbanki hf. hefur ekki skyldu til að, og mun ekki, uppfæra þessar spár um framtíðarhorfur félagsins til að endurspegla atburði og aðstæður sem eiga sér stað eftir útgáfu þessarar fréttatilkynningar. Það er ábyrgð fjárfestis að reiða sig ekki seinna meir á spár um framtíðarhorfur sem eru settar fram í þessari fréttatilkynningu þar sem þær eiga eingöngu við á þeim tíma sem hún er gefin út. Spár um framtíðarhorfur gefa ekki áreiðanlega vísbendingu um framtíðarárangur og eru allar yfirlýsingar um framtíðarhorfur félagsins fullgildar í heild sinni með tilliti til þessa fyrirvara.