Prenumeration
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Large Cap Iceland |
Sektor | Finans |
Industri | Storbank |
Íslandsbanki hf. hefur undirritað samninga við Arion banka hf., Kviku hf. og Landsbankann um viðskiptavakt á eftirmarkaði með sértryggð skuldabréf útgefin af Íslandsbanka og skráð á Nasdaq Iceland.
Tilgangur samninganna er að efla viðskipti með þau skuldabréf sem samningarnir taka til í því skyni að eðlilegt markaðsverð skapist á skuldabréfunum og verðmyndun verði með skilvirkum og gagnsæjum hætti.
Viðskiptavakar munu daglega setja fram kaup- og sölutilboð í skuldabréfin. Lágmarksfjárhæð miðast við útistandandi nafnverð í hverjum flokki í samræmi við töflu:
Stærð flokks (ma. kr.) | Lágmarkstilboð (m.kr.) | |
Óverðtryggðir flokkar | Verðtryggðir flokkar | |
0 - 3 | 0 | 0 |
3 – 5 | 20 | 20 |
5 – 10 | 60 | 40 |
Yfir 10 | 80 | 40 |
Skyldur einstakra viðskiptavaka falla niður á tilteknum viðskiptadegi ef viðskiptavaki hefur átt viðskipti (tilgreind "AUTO") með sértryggð skuldabréf fyrir 500 m. kr. að nafnverði samanlagt í þeim flokkum sem samningurinn nær til.
Hámarksmunur kaup- og sölutilboða fer eftir árafjölda til lokagjalddaga á hverjum tíma sbr. neðangreinda töflu:
Árafjöldi til lokagjalddaga | Hámarksmunur óverðtryggðra skuldabréfa | Hámarksmunur verðtryggðra skuldabréf |
0 - 6 mánuðir | Ekki skilgreindur hámarksmunur | Ekki skilgreindur hámarksmunur |
6 mánuðir - 2 ár | 0,20% | Ekki skilgreindur hámarksmunur |
2 - 4 ár | 0,30% | 0,30% |
4 -6 ár | 0,35% | 0,35% |
6 - 9 ár | 0,60% | 0,60% |
9 -12 ár | 0,70% | 0,70% |
12 - 18 ár | 1,00% | 1,00% |
18 ár eða lengra | 1,15% | 1,15% |
Flokkar gefnir út á fljótandi vaxtagrunni, með REIBOR eða aðra sambærilega vexti sem birtir eru opinberlega sem vaxtagrunnur, hafa 0,2% hámarksverðbil á kaup- og sölutilboðum.
Íslandsbanki greiðir viðskiptavökum þóknun og mun veita viðskiptavökum aðgang að verðbréfalánum. Hámarkslán í hverjum flokki sértryggðra skuldabréfa er 320 m.kr. að nafnverði.