Bifogade filer
Prenumeration
Beskrivning
| Land | Island |
|---|---|
| Lista | Large Cap Iceland |
| Sektor | Finans |
| Industri | Storbank |
Vem äger bolaget?
All ägardata du vill ha finns i Holdings!
Leiðrétt hefur verið tilvísun til ákvæðis laga um hlutafélög. Misritað var 84. gr. í upphaflegri tilkynningu en rétt tilvísun er 85. gr. laga um hlutafélög nr. 2/1995. Hefur það verið leiðrétt í meginmáli tilkynningar
Stjórn Íslandsbanka hefur borist krafa frá hluthöfum sem hafa yfir að ráða meira en 1/20 hlutafjár í bankanum um að boðað verði til hluthafafundar þar sem stjórnarkjör er á dagskrá. Er krafan gerð í samræmi við 85. grein hlutafélagalaga nr. 2/1995 og ákvæði samþykkta Íslandsbanka.
Samkvæmt ákvæðum samþykkta Íslandsbanka og hlutafélagalaga skal boða til fundarins innan 14 daga frá móttöku kröfu þar um, og skal hann þá boðaður með að lágmarki þriggja vikna en að hámarki fjögurra vikna fyrirvara.