Bifogade filer
Prenumeration
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Large Cap Iceland |
Sektor | Finans |
Industri | Storbank |
Moody's Ratings (Moody's) hefur í dag staðfest A3 lánshæfismat Íslandsbanka, A2 langtíma- og P-1 skammtíma lánshæfismat fyrir innlán, og A3 lánshæfismat fyrir almenn ótryggð skuldabréf með stöðugum horfum. Langtíma lánshæfismat innlána og lánshæfismat bankans sem útgefanda eru með stöðugum horfum. Grunnlánshæfismat (BCA) og aðlagað BCA hefur verið staðfest sem baa2.
Staðfestingin kemur í kjölfar tilkynningar Arion banka hf. þar sem lýst er yfir áhuga á samrunaviðræðum við Íslandsbanka.
Samhliða því að tilgreina að slíkur samruni væri háður samþykki Samkeppniseftirlitsins, hluthafa og Seðlabanka Íslands, tilgreinir Moody's að sameinað fyrirtæki „gæti notið góðs af stærðarhagkvæmni sem leiða myndi af sér aukna skilvirkni. Þess ber einnig að geta að sá samruni sem um ræðir er stórt verkefni og flóknari en önnur kaup sem báðir bankar hafa hingað til haft hug á, sem hafa verið minni í sniðum, og leiðir slíkt af sér aukna rekstraráhættu. Sú skammtímaáhætta jafnast út með ávinningi til meðalalangs tíma, í formi aukins seljanleika á fjármálamörkuðum sem leiðir til lægri fjármögnunarkostnaðar og aukins aðgengis að mörkuðum.“
Tilkynningu Moody's má finna í viðhengi.