02:21:21 Europe / Stockholm

Kurs & Likviditet

Kursutveckling och likviditet under dagen för detta pressmeddelande

Prenumeration

Kalender

2023-10-26 Kvartalsrapport 2023-Q3
2023-07-27 Kvartalsrapport 2023-Q2
2023-05-04 Kvartalsrapport 2023-Q1
2023-02-09 Bokslutskommuniké 2022
2022-10-27 Kvartalsrapport 2022-Q3
2022-07-28 Kvartalsrapport 2022-Q2
2022-05-05 Kvartalsrapport 2022-Q1
2022-03-17 Årsstämma 2022
2022-02-10 Bokslutskommuniké 2021
2021-10-28 Kvartalsrapport 2021-Q3
2021-07-28 Kvartalsrapport 2021-Q2
2021-05-05 Kvartalsrapport 2021-Q1

Beskrivning

LandIsland
ListaLarge Cap Iceland
SektorFinans
IndustriStorbank
Íslandsbanki är verksamma inom finanssektorn. Idag erbjuder banken ett brett utbud av finansiella tjänster, huvudsakligen inriktat mot små- och medelstora företagskunder. Tjänsteutbudet är brett och inkluderar exempelvis kapitalförvaltning samt lånefinansiering. Utöver huvudverksamheten erbjuds diverse kringtjänster. Bolaget bedriver verksamhet runtom den isländska hemmamarknaden.
2024-06-27 13:12:00

EKKI TIL ÚTGÁFU, BIRTINGAR EÐA DREIFINGAR TIL BANDARÍKJANNA EÐA YFIRRÁÐASVÆÐA ÞESS (Þ.Á.M PÚERTÓ RÍKÓ, BANDARÍSKU JÓMFRÚAREYJAR, GVAM, BANDARÍSKA SAMÓA, VARSÍMAEYJAR EÐA NORÐUR-MARÍANAEYJAR) EÐA HVERRAR ÞEIRRAR LÖGSÖGU ÞAR SEM HIÐ SAMA TELDIST BROT Á LÖGUM VIÐKOMANDI LÖGSÖGU (SJÁ NÁNAR TAKMARKANIR Í HJÁLAGÐRI TILKYNNINGU UM ENDURKAUPATILBOÐ). 

Íslandsbanki hf. (hér eftir bankinn) tilkynnir í dag um niðurstöðu endurkaupatilboðs til eigenda 300 milljóna evra skuldabréfaútgáfu sem ber 7,375% vexti og er á gjalddaga 17. maí 2026 (ISIN: XS2553604690) (hér eftir skuldabréfin) gegn greiðslu reiðufjár (hér eftir endurkaupatilboðið), eins og nánar er lýst í hjálagðri tilkynningu. 

Endurkaupatilboðið var tilkynnt þann 17. júní 2024 og var háð þeim skilmálum og skilyrðum sem er að finna í endurkaupatilboðslýsingunni (e. Tender Offer Memorandum) sem dagsett er 17. júní 2024, sem bankinn gaf út, og þeim breytingum sem gerðar voru á skilmálum endurkaupatilboðsins með tilkynningu bankans um enduropnun og framlengingu dags. 25. júní 2024.

Bankanum bárust gild tilboð að fjárhæð 272.657.000 evra að nafnvirði, sem nemur 90.89% af höfuðstól útistandandi skuldabréfa. Öll gild tilboð voru samþykkt. Ef bankinn uppfyllir skilyrði skilmála skuldabréfanna, þá hyggst bankinn nýta sér rétt sinn til að innleysa þau skuldabréf sem bankanum bárust ekki gild tilboð í og ekki voru samþykkt samkvæmt endurkaupatilboðinu, sem tilkynnt verður um í samræmi við skilmála skuldabréfanna. 

Umsjónaraðilar (e. Joint Lead Managers) með endurkaupunum voru Deutsche Bank Aktiengesellschaft og NatWest Markets N.V.