2025-11-04 11:57:00
Í tengslum við útboð Íslandsbanka á sértryggðum skuldabréfum í gær fór fram skiptiútboð þar sem eigendur flokksins ISB CBI 26 áttu kost á því að selja bréf í flokknum á fyrirfram ákveðna hreina verðinu 99,2477 gegn kaupum í útboðinu.
Niðurstaða skiptiútboðs leiðir til þess að Íslandsbanki kaupir 1.060 m. kr. að nafnvirði í flokknum ISB CBI 26.
Uppgjör endurkaupanna fer fram þann 10. nóvember 2025.
Umsjónaraðili útboðsins var Verðbréfamiðlun Íslandsbanka.