Onsdag 5 November | 20:28:51 Europe / Stockholm
2025-11-03 17:38:00

Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á sértryggðum skuldabréfum. Heildareftirspurn í útboðinu var 4.260 m.kr.

Samþykkt tilboð í óverðtryggða flokkinn ISB CB 31 voru samtals 2.140 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 7,28%. Heildartilboð voru 2.420 m.kr. á bilinu 7,25% til 7,30%.

Samþykkt tilboð í verðtryggða flokkinn ISB CBI 32 voru samtals 1.640 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 3,32%. Heildartilboð voru 1.840 m.kr. á bilinu 3,29% til 3,35%.

Niðurstaða endurkaupa á ISB CBI 26 verður tilkynnt á morgun.

Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 10. nóvember 2025.
 
Umsjónaraðili útboðsins var Verðbréfamiðlun Íslandsbanka.