Måndag 6 April | 10:18:20 Europe / Stockholm
2026-03-23 18:11:00

Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á sértryggðum skuldabréfum. Heildareftirspurn í útboðinu var 5.080 m.kr.

Samþykkt tilboð í óverðtryggða flokkinn ISB CBF 28 voru samtals 1.000 m.kr. á 0,10% álagi á 1 mánaða REIBOR. Heildartilboð voru 3.220 m.kr. á álagi á bilinu 0,08% til 0,15%. Heildarstærð flokks eftir útgáfuna verður 5.480 m.kr. og þar af eru 960 m.kr. til eigin nota.

Samþykkt tilboð í verðtryggða flokkinn ISB CBI 32 voru samtals 1.120 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 3,24%. Heildartilboð voru 1.860 m.kr. á bilinu 3,19% til 3,29%. Seld verða áður útgefin bréf í eigu bankans. Heildarstærð flokks er 40.000 m.kr. og þar af eru 21.480 m.kr. til eigin nota eftir útboðið.

Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 30. mars 2026.
 
Umsjónaraðili útboðsins var Verðbréfamiðlun Íslandsbanka.