Íslandsbanki hf.: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa
Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á sértryggðum skuldabréfum. Heildareftirspurn í útboðinu var 6.240 m.kr.
Samþykkt tilboð í óverðtryggða flokkinn ISB CB 31 voru samtals 1.300 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 7,45%. Heildartilboð voru 1.840 m.kr. á bilinu 7,41% til 7,49%. Seld verða áður útgefin bréf í eigu bankans. Heildarstærð flokks er 40.000 m.kr. og þar af eru 18.740 m.kr. til eigin nota eftir útboðið.
Samþykkt tilboð í verðtryggða flokkinn ISB CBI 32 voru samtals 3.600 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 3,38%. Heildartilboð voru 4.400 m.kr. á bilinu 3,35% til 3,43%. Seld verða áður útgefin bréf í eigu bankans. Heildarstærð flokks er 40.000 m.kr. og þar af eru 12.020 m.kr. til eigin nota eftir útboðið.
Uppgjör viðskipta fer fram þann 19. nóvember 2026.
Umsjónaraðili útboðsins var Verðbréfamiðlun Íslandsbanka.