Bifogade filer
Prenumeration
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Large Cap Iceland |
Sektor | Finans |
Industri | Storbank |
Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á sértryggðum skuldabréfum. Heildareftirspurn í útboðinu var 7.240 m.kr.
Samþykkt tilboð í verðtryggða flokkinn ISB CBI 29 voru samtals 3.920 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 3,72%. Heildartilboð voru 5.820 m.kr. á bilinu 3,65% til 3,77%. Seld verða áður útgefin bréf í eigu bankans.
Samþykkt tilboð í óverðtryggða flokkinn ISB CBF 27 voru samtals 1.380 m.kr. á 1 mánaða REIBOR + 0,40%. Heildartilboð voru 1.420 m.kr. á kröfunni REIBOR + 0,38% til REIBOR + 0,42%. Seld verða áður útgefin bréf í eigu bankans.
Í tengslum við útboðið bauðst eigendum flokksins ISB CBI 24 að selja bréf í flokknum gegn kaupum á skuldabréfum í ofangreindu útboði. Hreint verð á flokknum var fyrirfram ákveðið sem 99,8112 (ávöxtunarkrafa 4,10%). Bankinn kaupir til baka 1.780 m.kr. að nafnvirði í flokknum.