Lördag 26 Oktober | 01:56:10 Europe / Stockholm
2024-10-01 18:33:00

Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á sértryggðum skuldabréfum. Heildareftirspurn í útboðinu var 6.980 m.kr.

Samþykkt tilboð í verðtryggða flokkinn ISB CBI 29 voru samtals 4.900 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 4,30%. Heildartilboð voru 6.720 m.kr. á bilinu 4,26% til 4,35%.

Samþykkt tilboð í óverðtryggða flokkinn ISB CBF 27 voru samtals 260 m.kr. á 0,385% álagi á 1 mánaða REIBOR. Heildartilboð voru 260 m.kr. á álaginu 0,37% til 0,385% á 1 mánaða REIBOR.