Söndag 5 Juli | 10:25:53 Europe / Stockholm

Íslandsbanki hf.: Niðurstöður endurkaupatilboðs skuldabréfa í norskum og sænskum krónum

2026-06-04 12:21:00

Vísað er til tilkynningar Íslandsbanka hf. („bankinn“) þann 3. júní 2026 um endurkaupatilboð vegna tiltekinna útistandandi skuldabréfa í norskum og sænskum krónum, sem tilgreind eru hér að neðan („skuldabréfin“).

Verð og niðurstöður endurkaupatilboðsins eru eftirfarandi:

Lýsing skuldabréfanna / ISIN / Álag / Verð / Samþykkt tilboð
SEK 500.000.000 FRN due November 2026 / XS2715286394 / DM + 25bps / 101,0320/ 171.000.000
SEK 500.000.000 FRN due January 2027 / XS2751578050 / DM + 30bps / 101,3060 / 393.000.000
NOK 500.000.000 FRN due January 2027 / NO0013132159 / DM + 27,5bps / 101,2810/ 170.000.000

Gert er ráð fyrir að uppgjör endurkaupatilboðsins fari fram þann 11. júní 2026.

Umsjónaraðilar endurkaupatilboðsins voru Danske Bank, DNB Carnegie og SEB.