Bifogade filer
Kurs & Likviditet
Prenumeration
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Large Cap Iceland |
Sektor | Finans |
Industri | Storbank |
Íslandsbanki hf. (Íslandsbanki eða bankinn) ákvað að taka tilboðum fyrir 20.860.907 hluti á genginu 95,80 krónur fyrir hvern hlut í endurkaupum sem tilkynnt var um miðvikudaginn 5. júní 2024. Uppgjörsdagur samþykktra tilboða er mánudagurinn 10. júní 2024.
Endurkaupin eru í samræmi við viðeigandi lög, þ.á m. lög um hlutafélög nr. 2/1995 og reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik, sem hefur lagagildi hér á landi, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021. Samþykki fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands vegna kaupa bankans á eigin hlutum er fyrirliggjandi.
Íslandsbanki hf. á 75.778.195 hluti, eða sem nemur 3,79% af útgefnu hlutafé að loknum kaupum á þeim bréfum sem um ræðir hér að ofan. Í framangreindri samtölu eru einnig kaup á 555.030 hlutum sem voru viðskipti dagana 3. júní 2024 til 5. júní 2024 sem keypt voru samkvæmt endurkaupaáætlun sem tilkynnt var um 22. mars 2024.