Íslandsbanki hf.: Niðurstöður í endurkaupum á eigin bréfum með öfugu tilboðsfyrirkomulagi
Íslandsbanki hf. („Íslandsbanki“ eða „bankinn“) ákvað að taka tilboðum fyrir 7.200.000 hluti á genginu 136,8 krónur fyrir hvern hlut í endurkaupunum sem tilkynnt var um þann 4. nóvember 2026 („endurkaupin“). Uppgjörsdagur samþykktra tilboða er 9. nóvember 2026.
Endurkaupin eru í samræmi við viðeigandi lög og reglur, þ. á m. lög um hlutafélög nr. 2/1995, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 2016/1052, lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021 og reglur nr. 1290/2025 um sama efni. Samþykki fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands vegna kaupa bankans á eigin hlutum er fyrirliggjandi.
Íslandsbanki á 120.085.349 eigin hluti, sem nemur 6,85% af útgefnu hlutafé, að loknum kaupum á þeim bréfum sem um ræðir hér að ofan. Í framangreindri samtölu eru einnig 504.344 hlutir sem keyptir voru þann 4. nóvember 2026 á grundvelli endurkaupaáætlunar sem tilkynnt var um þann 1. október 2026.
Þessi tilkynning er birt af Íslandsbanka hf. og inniheldur upplýsingar sem töldust eða kunna að hafa talist innherjaupplýsingar í skilningi 7. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik (MAR), sbr. lög nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum, varðandi endurkaupin sem lýst er að ofan. Tilkynning þessi er gerð af Ellerti Hlöðverssyni, fjármálastjóra Íslandsbanka hf., í samræmi við upplýsingaskyldu bankans samkvæmt MAR og 2. gr. framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/1055.