Bifogade filer
Prenumeration
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Large Cap Iceland |
Sektor | Finans |
Industri | Storbank |
Vísað er til tilkynningar Íslandsbanka hf. sem birt var 14. júní 2024 um framkvæmd endurkaupaáætlunar á eigin bréfum.
Í viku 30 keypti Íslandsbanki hf. (bankinn) 667.907 eigin hluti að kaupverði alls kr. 67.743.070 eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð (kr) | Eigin hlutir eftir viðskipti |
22.7.24 | 09:55:36 | 200.000 | 102,00 | 20.400.000 | 82.321.732 |
22.7.24 | 12:28:47 | 110.740 | 101,00 | 11.184.740 | 82.432.472 |
22.7.24 | 14:11:07 | 403 | 99,80 | 40.219 | 82.432.875 |
23.7.24 | 15:29:51 | 7.306 | 102,00 | 745.212 | 82.440.181 |
23.7.24 | 15:29:51 | 4.670 | 102,00 | 476.340 | 82.444.851 |
23.7.24 | 15:29:51 | 12.659 | 102,00 | 1.291.218 | 82.457.510 |
24.7.24 | 09:52:21 | 150.000 | 101,50 | 15.225.000 | 82.607.510 |
24.7.24 | 10:41:18 | 29.376 | 100,50 | 2.952.288 | 82.636.886 |
24.7.24 | 15:23:30 | 2.753 | 101,00 | 278.053 | 82.639.639 |
25.7.24 | 09:43:01 | 150.000 | 101,00 | 15.150.000 | 82.789.639 |
Samtals vikan | 667.907 | 67.743.070 |
Fyrir framangreind viðskipti í viku 30 átti bankinn 82.121.732 hluti, sem nemur 4,11% af útgefnum hlutum. Í þessari umferð endurkaupa hefur bankinn keypt 5.499.502 hluti, sem nemur 0,27% af útgefnum hlutum og nemur heildarkaupverð eigin hluta samtals kr. 540.787.787 í umferðinni.
Í þessari umferð endurkaupa er áætlað að kaupa allt að 11 milljón hluti sem jafngildir 0,55% af útgefnu hlutafé bankans, þó þannig að heildarfjárhæð endurkaupanna að þessu sinni verði aldrei meiri en samtals kr. 1.000.000.000. Endurkaupunum var haldið áfram 18. júní síðastliðinn og munu standa yfir þar til öðru hvoru framangreindra viðmiða um magn eða fjárhæð er náð, en þó aldrei lengur en til 30. september 2024.
Frá upphafi endurkaupa í febrúar 2023 hefur bankinn keypt samtals 82.789.639 eigin hluti eða sem nemur 4,14% af útgefnum hlutum í bankanum.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við viðeigandi lög og reglur, þ.á m. lög um hlutafélög nr. 2/1995, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014 og framselda reglugerð Framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 2016/1052, lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021 og reglugerðar nr. 320/2022 um sama efni. Samþykki Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands vegna kaupa bankans á eigin hlutum er fyrirliggjandi.
Þessi tilkynning er birt af Íslandsbanka hf. og inniheldur upplýsingar sem töldust eða kunna að hafa talist innherjaupplýsingar í skilningi 7. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og Ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik (MAR), sbr. lög nr. 60/2021, um aðgerðir gegn markaðssvikum, varðandi endurkaupaáætlunina sem lýst er að ofan. Tilkynning þessi er gerð af Ellerti Hlöðverssyni, fjármálastjóra Íslandsbanka hf., í samræmi við upplýsingaskyldu bankans samkvæmt MAR og 2. gr. framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EU) 2016/1055.