Bifogade filer
Prenumeration
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Large Cap Iceland |
Sektor | Finans |
Industri | Storbank |
Vísað er til tilkynningar Íslandsbanka hf. sem birt var 26. október 2023 um áframhaldandi framkvæmd endurkaupaáætlunar sem upphaflega var tilkynnt um þann 17. febrúar 2023.
Í viku 45 keypti Íslandsbanki hf. (bankinn) 1.384.254 eigin hluti að kaupverði alls kr. 144.067.043 eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Vika | Dagsetning | Tímasetning viðskipta | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð (kr) | Hlutir í eigu Íslandsbanka eftir viðskipti |
45 | 6.11.23 | 14:07:22 | 200.000 | 104,50 | 20.900.000 | 9.680.831 |
45 | 6.11.23 | 14:56:26 | 59.254 | 104,50 | 6.192.043 | 9.740.085 |
45 | 7.11.23 | 12:57:12 | 125.000 | 104,50 | 13.062.500 | 9.865.085 |
45 | 8.11.23 | 10:24:58 | 125.000 | 104,00 | 13.000.000 | 9.990.085 |
45 | 8.11.23 | 11:11:27 | 100.000 | 103,75 | 10.375.000 | 10.090.085 |
45 | 8.11.23 | 13:15:34 | 100.000 | 104,00 | 10.400.000 | 10.190.085 |
45 | 8.11.23 | 15:00:59 | 75.000 | 103,50 | 7.762.500 | 10.265.085 |
45 | 9.11.23 | 11:41:53 | 100.000 | 104,00 | 10.400.000 | 10.365.085 |
45 | 9.11.23 | 13:14:59 | 100.000 | 104,00 | 10.400.000 | 10.465.085 |
45 | 10.11.23 | 10:58:14 | 100.000 | 103,75 | 10.375.000 | 10.565.085 |
45 | 10.11.23 | 15:15:24 | 200.000 | 103,75 | 20.750.000 | 10.765.085 |
45 | 10.11.23 | 15:27:49 | 100.000 | 104,50 | 10.450.000 | 10.865.085 |
1.384.254 | 144.067.043 |
Fyrir viðskiptin í viku 45 átti bankinn 9.480.831 eigin hlut, sem nemur 0,47% af útgefnum hlutum. Í þessari umferð endurkaupa hefur bankinn keypt 3.384.254 hluti, sem nemur 0,17% af útgefnum hlutum og nemur heildarkaupverð eigin hluta samtals kr. 352.842.043.
Í þessari umferð endurkaupa er áætlað að kaupa, allt að 9,5 milljónir hluti sem jafngildir 0,475% af útgefnu hlutafé bankans, þó þannig að heildarfjárhæð endurkaupanna að þessu sinni verði aldrei meiri en samtals kr. 1.000.000.000. Endurkaupunum var haldið áfram 27. október síðastliðinn og munu standa yfir þar til öðru hvoru framangreindra viðmiða um magn eða fjárhæð er náð, en þó aldrei lengur en til 27. febrúar 2024.
Frá upphafi endurkaupaáætlunar í febrúar 2023 hefur bankinn keypt samtals 10.865.085 eigin hluti eða sem nemur 0,54% af útgefnum hlutum í bankanum.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við viðeigandi lög og reglur, þ.á m. lög um hlutafélög nr. 2/1995, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 296/2014 um markaðssvik og framselda reglugerð Framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 2016/1052, lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021 og reglugerðar nr. 320/2022 um sama efni. Samþykki Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands vegna kaupa bankans á eigin hlutum er fyrirliggjandi.