Bifogade filer
Prenumeration
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Large Cap Iceland |
Sektor | Finans |
Industri | Storbank |
Vísað er til tilkynningar Íslandsbanka hf. sem birt var 17. desember 2024 um áframhaldandi framkvæmd endurkaupaáætlunar á eigin bréfum sem upphaflega var tilkynnt um 14. júní 2024. Það sem af er viku 4 keypti Íslandsbanki hf. (bankinn) 998.354 eigin hluti að kaupverði alls kr. 121.324.219 eins og nánar er greint í þessari tilkynningu.
Það sem af er viku 4 keypti Íslandsbanki hf. (bankinn) 998.354 eigin hluti að kaupverði alls kr. 121.324.219 eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Dagsetning | Tímasetning viðskipta | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð (kr) | Eigin hlutir eftir viðskipti |
20.1.25 | 10:21:34 | 150.000 | 121,00 | 18.150.000 | 110.685.857 |
20.1.25 | 12:36:58 | 150.000 | 120,75 | 18.112.500 | 110.835.857 |
20.1.25 | 14:55:52 | 130.000 | 121,00 | 15.730.000 | 110.965.857 |
21.1.25 | 13:28:27 | 200.000 | 121,50 | 24.300.000 | 111.165.857 |
21.1.25 | 14:49:42 | 230.000 | 121,50 | 27.945.000 | 111.395.857 |
22.1.25 | 11:15:29 | 138.354 | 123,50 | 17.086.719 | 111.534.211 |
Samtals | 998.354 | 121.324.219 |
Fyrir framangreind viðskipti í viku 4 átti bankinn 110.535.857 hluti, sem nemur 5,53% af útgefnum hlutum.
Þessari umferð endurkaupa, sem tilkynnt var um í kauphöll þann 17. desember 2024, er nú lokið. Samkvæmt framangreindri tilkynningu var áætlað að kaupa allt að 10 milljón hluti sem jafngildir 0,50% af útgefnu hlutafé bankans, þó þannig að heildarfjárhæð endurkaupanna að þessu sinni verði aldrei meiri en samtals kr. 1.000.000.000.
Í þessari umferð endurkaupa keypti bankinn 8.091.012 hluti, sem nemur 0,40% af útgefnum hlutum og nemur heildarkaupverð eigin hluta samtals kr. 999.999.989 í umferðinni. Framangreindu hámarki heildarfjárhæðar endurkaupa er því náð í þessari umferð.
Frá upphafi endurkaupa í febrúar 2023 hefur bankinn keypt samtals 111.534.211 eigin hluti eða sem nemur 5,58 % af útgefnum hlutum í bankanum.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við viðeigandi lög og reglur, þ.á m. lög um hlutafélög nr. 2/1995, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014 og framselda reglugerð Framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 2016/1052, lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021 og reglugerðar nr. 320/2022 um sama efni. Samþykki Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands vegna kaupa bankans á eigin hlutum er fyrirliggjandi.